Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1986, Page 60

Náttúrufræðingurinn - 1986, Page 60
sjálft breytist varla á næstunni og því er kominn tími til að finna íslenskt orð yfir það eins og Jakob bendir á. Margt mælir með því að skilgreina orðið gerill að nýju á hliðstæðan hátt og gert var um orðið „bacterium“ 1962 og láta það tákna sama hugtak. Gerill er rótgróinn í málinu og þekktur meðal almennings í nokkurn veginn „réttri" meiningu, síst óljósari en við er að búast. Ákveðin, vel afmörkuð merking ætti því að geta fest við það. í»að er ekki aðeins hentugt að nota orðið gerill áfram, heldur nauðsynlegt til að forðast glundroða. GERILL OG GERSVEPPUR Það er mér kannski ofvaxið að sann- færa alla fræðimenn um ágæti orðsins gerill í merkingunni „bacterium". Hins vegar er ljóst að sumir hafna því að lítt athuguðu máli. Skal því reynt að tína til haldgóð rök til að menn sætti sig við það eins og önnur orð sem hnikast hafa til í merkingu með breytt- um aðstæðum. Pess er að geta að viðskeytið -ill er smækkunarending (kistill, bleðill), enda þótt það skírskoti til geranda ef það er með stofni sagnar. Orðin gerill, ger og gersveppur vís- uðu ef til viil einhvern tímann til líf- vera sem geta gerjað og má hafa þá tilvísun í huga. Slík skírskotun virðist þó fallin úr gildi hvað gersveppi varðar. Venja er að þýða enska orðið „yeast“ og sams konar orð í öðrum málum með „gersveppur“ eða „ger“. Barnett o. fl. (1983) telja upp ein- kenni 469 gersveppategunda. Af þeim geta 157 tegundir (33,5%) ekki gerjað neina af þeim 13 sykurtegundum sem prófaðar voru og afbrigði af 19 tegund- um öðrum (4,0%) geta það ekki held- ur. Sumar tegundir sömu ættkvíslar (t. d. Candida) geta gerjað en aðrar ekki. Varla er æskilegt að breyta um nafn á þessum hópi né kljúfa hann fyrir því. Próf með 13 sykurtegundir gefur ekki óyggjandi svar, en óvissan er þarna og skírskotunin farin lönd og leið. Af hverju þarf orðið gerill alltaf að skírskota til lífvera sem gerja fyrst gersveppir gera það ekki lengur? (Orðhenglar mættu einnig gá að hve vísun til gerjunar er víðfem). Nokkur einkenni gersveppa eru eftirfarandi: Allir anda ef óbundið súr- efni er til staðar og flestir gerja í fjar- veru þess. Þeir eru heilkjörnungar með frumuvegg, vaxa langoftast sem einfrumungar, sem næst kúlulaga eða stuttir stafir en sumir mynda einnig misvel þróaðar ímur (hyphae) og jafn- vel frumstætt mýsli (mycelium) ef skil- yrði eru fyrir hendi. Sumar tegundir þráðsveppa taka einnig lögun ger- sveppa við vissar aðstæður. Engir ger- sveppir geta hreyft sig, hvorki með bifhárum né á annan hátt. Frá þessu sjónarmiði virðist ekki út í hött að líkja mörgum „bakteríuhópum“ við litla gersveppi. Því er eins farið með gerlum og gersveppum að í hópum sem nú virðist eðlilegt að mynda geta sumar tegundir gerjað en aðrar ekki, t. d. í ættkvísl- inni Bacillus. Hliðstæð óregla kemur fyrir hvað varðar hreyfingu gerla með svipum. Þeir gerlahópar sem minna lítið eða ekkert á gersveppi eru fáir og líklega litlir, en engin ástæða til að kljúfa þá frá öðrum gerlum. Af því sem að framan er sagt virðist „gerill“ í merkingunni örvera sem get- ur gerjað vera óljóst og ruglandi hug- tak og fæ ég reyndar ekki séð að mikil þörf sé á því. SÝKILL Þótt merking orðsins sýkill sé gagnsæ er ótrúlega oft spurt: Hvað er sýkill? Samkvæmt orðsins hljóðan ætti 158
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.