Náttúrufræðingurinn - 1986, Síða 35
fyrsta lagi úr gjánum á Þingvöllum. Á
síðustu metrunum að Þingvallavatni
nefnist lindavatnsstraumurinn Silfra.
Silfra er á, stutt og kristaltær. í öðru
lagi streymir hvarvetna inn lindavatn í
Vatnsvik, einkum í innsta (nyrsta)
hluta viksins. Þar að austan ber land-
spilda nafnið Vellankatla. í fjöruborð-
inu eru vellandi lindir og bullaugu.
Hinar fjölmörgu lindir við Þingvalla-
vatn sjást best þegar ís hefur legið á
vatninu í örfáa daga. Afætur og opnur
sýna þá hvar kaldavermsl streymir
fram.
Dragárvatn, þ.e.a.s. yfirborðsvatn,
er aðeins röskur Vío innrennslisins.
Smáárnar: Öxará, Ölfusvatnsá og
Villingavatnsá leggja það til. Þær eru
að mestu dragár en nokkurt lindavatn
rennur í þær.
Vatnshiti
Flestar lindanna eru á bilinu 2,9 til
3,8 gráður og breytast harla lítið milli
ára og árstíða. Vatnshiti smáánna
þriggja er aftur á móti allbreytilegur,
þar koma fram dragáreinkennin. Á
vetrum og einnig í fyrstu vorflóðum er
vatnshiti ánna fast niður undir 0
gráðum, en að sumrinu venjulega á
bilinu 6 til 16 gráður. Áhrif þeirra á
hita Þingvallavatns, gengur löngum í
gagnstæða átt við lindainnstreymið á
sama tíma. Niðurstaðan er sú að á
vetrum er innrennslið til Þingvalla-
vatns um þrjú stig en fjögur til fimm
að sumrinu. Ljóst er að hiti ársinn-
rennslis víkur ekki langt frá 4 gráðum.
Vatnshitamælingar, sem Sogsvirkj-
un hefur látið gera reglubundið um
langt árabil, sýna að venjulegast nær
útrennslið mestum hita nálægt
mánaðamótum júlí/ágúst (2. og 3.
mynd). Á köldum sólarlitlum sumrum
kemst hámark vatnshitans aðeins í 8
gráður. Venjulegast er hámarkið á bil-
inu 9 til 10 gráður. Á hlýjum sólríkum
sumrum stígur hiti útrennslis í 12 til 13
gráður. Hinar strjálu hitamælingar á
djúpu vatni, sem við höfum gert eru
vart nægilegar til að gefa heilsteypta
mynd af hitafari vatnsins.
Á kyrrum sólardögum að sumrinu
er æði mikill munur á hita á vogum
inni og úti á vatni. Á tveimur metrum
undir yfirborði er ekkert óvenjulegt að
mælist 1,5 gráðum kaldara úti á vatni.
Einn goludagur jafnar hitamuninn út.
í langvarandi kyrrum kemur fram allt
að þriggja stiga munur á yfirborðshita
á milli fjarlægra hluta vatnsins. í lóð-
réttu sniði er hitamunurinn jafnvel
fjórar til fimm gráður. í sumarhitum
eru kaldir pollar út frá lindum. Þeir
eru þá litlir um sig ef kyrrð er á, því að
kalda vatnið fer með botni. Kalda-
vermsl og hröð sumarhitun kalla á
hringstrauma. Merkja má furðu stríða
yfirborðsstrauma með norðaustlæga
stefnu, e.t.v. á hitamunur þar hlut að
máli. Nokkrir stormdagar haustsins
þurrka allan hitamismun út. Þannig
hefur allt niður á 80 m dýpi, eða eins
og náðist að kanna, mælst sama hita-
stig 6,3 gráður, það var 11. okt. 1973.
Veðurfar er það ólíkt milli ára að
marktæk meðaltöl fást ekki fyrr en
eftir allmörg ár samfelldra mælinga.
Um mánaðamótin okt/nóv., þ.e.a.s.
í vetrarbyrjun, er yfirborðshitinn
venjulegast rétt um 4 gráður. Kólnun-
in heldur áfram, um 20. nóvember er
yfirborðshitinn allajafnan kominn nið-
ur undir 0 gráður. Hér er átt við vatns-
hitann hjá Skálabrekku samkvæmt
strjálum athugunum um áratuga
skeið. Að Skálabrekku er síritandi
vatnshæðarmælir síðan 1975 og nú er
þar einnig tæki sem skráir vatnshitann
á klukkustundar fresti.
Eins og komið er fram er það vind-
urinn sem fyrst og fremst orsakar
blöndun vatnsins. Hann setur af stað
241