Náttúrufræðingurinn - 1986, Qupperneq 64
Nýjar ritgerðir
um náttúru Islands 8
í fyrrahaust kom út hefti í tímaritsröðinni Journal of Geophysical Research (90. árg. nr.
B12; október 1985), sem gefin er út í Bandaríkjunum. Hefti þetta er merkilegt fyrir þær
sakir, að í því eru 17 greinar, sem fjalla eingöngu um jarðfræði íslands og hafsbotnsins í
kring. Greinar þessar eru unnar upp úr fyrirlestrum, sem haldnir voru á ráðstefnu
alþjóðasambands jarðeðlisfræðinga (IUGG) í Hamborg í ágúst 1983. Ritstjórn önnuðust
Sigurður Steinþórsson og W. Jacoby, og rita þeir inngang að greinaflokknum. Hér á eftir
fer yfirlit um greinarnar.
Bott, M.H.B. Plate tectonic evolution of
the Icelandic transverse ridge and adjacent
regions. Bls. 9953— 9960. [Heimilisf.:
Dept. of Geological Sciences, Univ. of
Durham, England.] Gerð er grein fyrir
landreki og þróun hafsbotnsins milli Græn-
lands og Færeyja og myndun íslands. Að
mestu er stuðst við túlkun segulmælinga á
hafsbotninum.
Jancin, M., K.D. Young, B. Voight, J.
Aronson & Kristján Sœmundsson. Strati-
graphy and K/Ar ages across the west
flank of the northeast Iceland axial rift
zone, in relation to the 7 Ma volcano-
tectonic reorganization of Iceland. Bls.
9961 — 9985. [Heimilisf. fyrsta höf.: Dept.
of Geology and Physics, Georgia South-
western College, Americus, GA 31709
U.S.A.] Bergfræði, segulmælingar og kal-
íum-argon aldursákvarðanir á Flateyjar-
skaga gefa til kynna upphleðslu á tveimur
tímabilum: fyrir 13-9,5 milljón árum og
fyrir 6-7 milljón árum. Seinna tímabilið
markar færslu eldvirkni á NA-landi á nú-
verandi rekbelti.
Young, K.D., M. Jancin, B. Voight &
N.I. Orkan. Transform deformation of
Tertiary rocks along the Tjörnes fracture
zone, north central Iceland. Bls. 9986-
10010. [Heimilisf. fyrsta höf.: Dept. of
Geosciences, Penn State University, 303
Deike, University Park, PA 16802.] Lýst
er brotahreyfingum í jarðlagastafla frá
tertíer á Flateyjarskaga og gerð grein fyrir
tengslum hreyfinganna við brotabeltið sem
kennt er við Tjörnes og tengir jarðelda-
beltið á NA-landi við Kolbeinseyjarhrygg.
Níels Óskarsson, Sigurður Steinþórsson
& Guðmundur E. Sigvaldason. Iceland ge-
ochemical anomaly: Origin, volcanotect-
onics, chemical fractionation and isotope
evolution of the crust. Bls. 10011—10025.
[Heimilisf. fyrsta höf.: Norræna eldfjalla-
stöðin, Reykjavík.] Fjallað er um efnasam-
setningu jarðskorpunnar á íslandi í ljósi
landrekskenningarinnar. Skýringar fást á
ýmsum afbrigðum í efnasamsetningu ef
gert er ráð fyrir heitum reit undir landinu
og reki jarðskorpunnar yfir hann.
Sigurður Steinþórsson, Níels Óskarsson
& Guðmundur E. Sigvaldason. Origin of
alkali basalts in Iceland: A plate tectonic
model. Bls. 10027—10042. [Heimilisf.
fyrsta höf.: Raunvísindastofnun há-
skólans, Reykjavík.] Fjallað er um upp-
runa alkalíbasalts, en það finnst einkum í
tengslum við gosbeltin á Snæfellsnesi og á
Mið-Suðurlandi.
Meyer, P.S., Haraldur Sigurðsson & J.-
G. Schilling. Petrological and geochemical
variations along Iceland's neovolcanic zon-
Náttúrufræðingurinn 56(4), bls. 270- 272, 1986 2 70