Náttúrufræðingurinn - 1988, Side 8
2. mynd. Fjara í mynni Þor-
geirsstaðadals í Lóni. Núnu
hnullungarnir hafa líklega
kastast 1 - 2 m upp fyrir
meðalsjávarborð. An ancient
shore beyond the Porgeirs-
staðadalur valley in Lón. The
rounded cobbles lie about
1 - 2 m above the former
mean sea level. (Mynd/photo
Hreggviður Norðdahl).
athugunarsvæðinu er 0,65 m en mis-
munur sjávarhæðar flóðs og fjöru er
1,37 m (+0,64 m og -0,73 m). Þessi
frávik eru innan skekkjumarka Paulin
mælisins og hæð fjörumarka því mið-
uð við meðalsjávarfallahæð sem í
þessu tilviki er sjávarmál á hverjum
stað óháð tíma.
Með endurteknum mælingum við
sjávarmál er unnt að fylgjast með loft-
þrýstingsbreytingum dagsins og frá
degi til dags. Leiðréttingargröf
(3. mynd) voru gerð fyrir hvern dag.
Úr þeim má lesa afleidd Paulin mæli-
gildi við sjó á sama tíma og hæð fjöru-
marka var mæld. Með einföldum frá-
drætti fæst hæð þessara fjörumarka
í m y.s. Nákvæmni hæðarmælinga í
m yfir sjó er talin vera ±3 m.
FJÖRUMÖRK OG
JÖKULGARÐAR
Menjar fornrar og hærri sjávarstöðu
eru algengar á svæðinu milli Horna-
fjarðar og Norðfjarðar en eins og fyrr
er getið eru þessar menjar af mismun-
andi gerð. Samt sem áður er greinilegt
að menjar eftir hærri sjávarstöðu eru
ójafnt dreifðar við einstaka firði og
víkur (1. mynd).
Ástæður þessa eru meðal annars
1. tafla: Meðalsjávarfallahæð og mismunur
flóðs og fjöru á Suðausturlandi dagana
20. - 26. júlí 1985 samkvæmt flóðtöflum
Sjómælinga Islands (1985). Mean tidal
height and difference between high and low
tides in Southeast Iceland between 20 and
26 ofJuly 1985.
Staður Meðal- sjávar- fallahæð Mismunur flóðs og fjöru
Höfn +0,75 m 1,01 m
Djúpivogur + 1,18 m 1,37 m
Fáskrúðsfjörður +0,95 m 0,96 m
Eskifjörður +0,81 m 0,66 m
Norðfjörður +0,53 m 0,76 m
Meðaltal +0,84 m 0,95 m
62