Náttúrufræðingurinn - 1988, Blaðsíða 14
7. mynd. Hæð mældra fjörumarka og legu jökulgarða í Fáskrúðsfirði varpað á plan sam-
hliða stefnu fjarðarins. Distance diagram for ancient shorelines in Fáskrúðsfjörður.
Stöðvarfjörður
Tvenn greinileg fjörumörk, efri og
neðri, eru í Stöðvarfirði. Hæð þeirra
efri fer vaxandi til austurs úr 34 m í
40 m y.s. af sömu ástæðum og að
framan er lýst. Hæð neðri fjörumark-
anna er 31 m y.s. Enginn eiginlegur
jökulgarður er í firðinum, en brún
jökuls hefur engu að síður skilið eftir
sig nokkuð áreiðanleg ummerki.
Ofan við bæinn Óseyri er all stór
hjalli (Árni Hjartarson o. fl. 1981) sem
nær 46 m y.s. Setlög hjallans eru af
þremur gerðum; neðst er skálagað
malar- og sandset, ofan á þeim er víxl-
laga malar- og sandset, en efst er jök-
ulruðningur.
Lagamót tveggja neðstu setgerð-
anna eru mismunandi. Austast í hjall-
anum mætast skálagaði og víxlagaði
hlutinn í skörpu mislægi. Lögum ská-
lagaða hlutans hallar til suðausturs til
fjarðarins. í innri (vestari) hluta hjall-
ans mætast þessar setgerðir ekki í mis-
lægi heldur fer halli skálaganna stöð-
ugt minnkandi upp á við og verður
þar vart greint hvar komið er í hinn
víxllagaða hluta setlaganna. Lögum
skálagaða hlutans hér hallar til suð-
vesturs inn til dalsins.
Niðurstaða okkar er sú að ytri hluti
hjallans sé óseyri sem hlóðst upp
framan við jökul sem skreið út Stöðv-
arfjörð á tíma hæstu sjávarstöðu. Þeg-
ar jökullinn hörfaði braut brimalda á
þessari setlagamyndun og öldurótið
skolaði setinu inn yfir hana. Neðri
fjörumörkunum má fylgja nokkuð inn
fyrir setlagahjallann, en þau eru um 8
m neðar en þau efri.
Fáskrúðsfjörður
Fjörumörk voru hæðarmæld við ut-
an- og innanverðan Fáskrúðsfjörð.
Hæð efstu fjörumarka fer hækkandi
úr 47 m í 52 m y.s. milli Hvamms og
Víkurgerðis út með firðinum að sunn-
an. Þetta eru ummerki 10 m hærri
sjávarstöðu en Árni Hjartarson o. fl.
(1981) geta um í Fáskrúðsfirði. Frá
Víkurgerði og inn í botn fjarðarins fer
hæð lægri fjörumarka hækkandi úr
39 m í 48 m y.s. I mynni Daladals
eru ummerki sem benda til enn lægri
68