Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1988, Page 33

Náttúrufræðingurinn - 1988, Page 33
Jón Jónsson Hestgerðismúli í Suðursveit INNGANGUR í austanverðri Suðursveit gengur all hár múli fram úr meginhálendinu. Á korti herforingjaráðsins 1:100.000 er hann nefndur Borgarhafnarfjall, en svo virtist mér sem Hestgerðismúli væri fremur notað af heimamönnum. Múlinn tekur nafn af bænum Hest- gerði, sem framan undir honum stendur, en skiftar skoðnanir hafa ver- ið uppi um það bæjarnafn, eins og meistari Þórbergur greinir frá í einu rita sinna. Ekki verður hér tekin af- staða til slíkra ágreiningsmála, enda virðast þau ekki eiga heima í Suður- sveit, eða vera þaðan ættuð. Þarna mun vera skemmmst milli fjalls og fjöru í Austur-Skaftafellssýslu að Vestra Horni fráteknu. Líklegt þykir mér að nokkrir þeirra er um veginn fara, muni veita því athygli að þetta fjall sker sig verulega úr að út- liti. Það er mest áberandi þegar kom- ið er vestanfrá og einkum ef sól er komin í vestur. Hér á eftir verður gerð tilraun til að draga fram nokkur af höfuðatriðunum í jarðfræði þessa fjalls, en byggð er sú tilraun einkum á athugunum, sem gerðar voru 1958 og 1962. FYRRI ATHUGANIR Nokkuð hefur áður verið ritað um Hestgerðismúla. Helgi Torfason hefur bent mér á að fyrstur þeirra muni vera Eugene Robert (1840), en hann var jarðfræðingurinn í hinum mikla franska leiðangri undir stjórn Paul Gaimards á árunum 1835-1836. Til heiðurs Páli þessum orti Jónas Hall- grímsson sitt fræga ljóð, sem hefst á orðunum: „Þú stóðst á tindi Heklu hám“. í riti Roberts og félaga hans, teiknarans A. Mayers má fylgja þeim austur strandlengju suðurlandsins, en hér skal aðeins staldrað við með þeim undir Hestgerðismúla. Mayer hefur teiknað tvær myndir af fjallinu (pl. 88 Atlas pittoresque). Sú fyrri virðist vera teiknuð vestan frá, en hin neðan við bæinn framan undir Múlanum. Sú síðari er betri, en hvorug verður talin góð né heldur gefa rétta mynd af útliti fjallsins. Af frásögninni er næsta ljóst að Robert (1840, bls. 240) hefur geng- ið á fjallið og skoðað bergmyndanirn- ar næsta vel. Fjallið hefnir hann Hest- gerðis-Fjall, en bergtegundina nefnir hann „mimosite" en það orð var áður fyrr nokkuð notað, einkum í frönsk- um ritum, um dökkt eða brúnleitt basalt. Um efsta hluta bergsins notar hann orðið „peperino“, en það orð er stundum haft um brotaberg af nokkuð mismunandi gerð, og má með nokkr- um rétti heimfæra það uppá efsta hluta Hestgerðismúla, („partie super- ieure d’Hestgerðis-Fjall“). Lýsing Roberts er mun betri en þeirra tveggja, sem næst á eftir koma, en það er Þorvaldur Thoroddsen, en hann segir í Ferðabók III (1914) „efst í Náttúrufræðingurinn 58 (2), bls. 87-96, 1988. 87

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.