Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1988, Side 41

Náttúrufræðingurinn - 1988, Side 41
9. mynd. Þverrákað stuðlaberg með meitlaförum neðst í Fallastakkanöf. Bas- alt columns with chisel marks in Falla- stakkanöf (h)ósm./photo Jón Jónsson). myndun er allt að 250 m þykk. Ekki verður því neitað að mjög líkist Múla- myndunin Dalsheiði a.m.k. á köflum, og skyldleiki í uppruna verður ekki auðveldlega hrakinn. Varðandi Múla- myndunina er um tvennt að ræða: Annað hvort gos á staðnum, eða hraunstraum undir jökli. Hvað hið fyrra varðar, liggur sú staðreynd fyrir að engir gangar, sem verið gætu að- færsluæðar hrauns, sjást ná upp í þessa myndun, né heldur neitt annað er bendir á beint samband við undir- djúpin. Ekki er þetta svæði stærra en svo að líklegt er að eitthvað sæist af slíku ef til væri. Helst væri þá hugsan- leg hringlaga hulin gosrás. Sé hins vegar um hraunstraum að ræða, vant- ar að geta bent á upptökin. Múla- myndunin nær sem næst 200 m hærra en blágrýtislögin norðan við hana, en á því svæði er ekki vitað um neitt, sem gæti verið hluti af henni. Einnig vakn- ar sú spurning, hvernig gat þessi til- tölulega losaralega myndun staðið af sér allt það rof sem blágrýtismyndunin norðan hennar hefur orðið fyrir? Uppi við jökulrönd eru hnúkar tveir, Þormóðarhnúta og Botnafjall, en milli þeirra er jökli fylltur dalur. Á öðrum þessara tinda, ég man nú ekki hvor- um, taldi Skarphéðinn að gömul eld- stöð væri, en þar hafði hann komið. Bergsýni tekin þar ættu að geta leitt í ljós skyldleika við Múlamyndunina ef hann er til staðar. Það verður því ekki greitt um sannanir fyrir uppruna Múlamyndunarinnar. Þótt ein mynd- un líkist annari er það ekki sönnun, en aðeins líkur fyrir að hugsanlega geti verið um sams konar uppruna og myndunarsögu að ræða. 95

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.