Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1988, Side 63

Náttúrufræðingurinn - 1988, Side 63
N áttúrufræðingurinn Leiðbeiningar til höfunda Náttúrufræðingurinn birtir efni um öll svið náttúrufræða, alþýðlegar yfir- litsgreinar um ákveðin svið, greinar um rannsóknir og athuganir og niður- stöður þeirra, athugasemdir og til- kynningar um skyld efni, gagnrýni og ritfregnir um náttúrufræðileg efni, minningagreinar um náttúrufræðinga og ritskrár þeirra og fleira þessu tengt. Ritstjórn fer yfir handrit og getur gert tillögur til höfunda um breytingar á þeim. Þetta geta verið athugasemdir af ritstjórnarlegum, málfarslegum eða faglegum toga. Ritstjórn leitar um- sagnar færustu manna á hverju sviði um innihald handrita og sendir þær at- hugasemdir til höfunda. Ritstjórn vonar að höfundar taki slíkum ábend- ingum vel og yfirvegi þær af skyn- semi. Með þessu er vonast eftir því að ekki birtist í ritinu annað en það sem best er í hverju máli og að grein- arnar skili innihaldi sínu vafninga- laust og skýrt til lesenda. Náttúru- fræðingnum var hleypt af stokkunum árið 1931 til þess að vera alþýðlegt fræðirit um náttúrufræði handa ís- lendingum og ritstjórnarstefnu hans hefur ekki verið breytt að þessu leyti síðan. Höfundar eru beðnir að hafa þetta í huga og haga skrifum sínum og frásögn í sem bestu samræmi við þetta. Náttúrufræðingurinn 58 (2), bls. 117-120, 1988. 117

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.