Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1988, Page 65

Náttúrufræðingurinn - 1988, Page 65
mynda í textanum og ætíð í réttri núm- eraröð. Fyrsta mynd kallast 1. mynd en ekki mynd 1 o. s. frv. Litmyndir eru dýrar í prentun og því er þeim frekar stillt í hóf í ritinu. Þess eru þó nokkur dæmi að höfundar hafa greitt fyrir litprentun sjálfir. Myndum fylgi stuttur og skýr texti og skal hann vera bæði á íslensku og ensku. Tilgreina skal höfund ljósmynda. Hér á eftir fylgja tvö dæmi um myndatexta: 1. mynd. Fundarstaðir stranddoppu Hydr- obia ventrosa (Montagu) við ísland. The known distribution of Hydrobia ventrosa (Montagu) in Iceland. 2. mynd. Skeggþerna í Garði 30. apríl 1987. Athugið öskugráan lit á fuglinum of- anverðum og lítið sýlt stél. Whiskered Tern in Garður 30. April 1987. (Mynd/ photo Kristján Lilliendahl). Töflur Töflur skal tölusetja í réttri töluröð, Tafla 1, Tafla 2 o. s. frv. Þeim skal gefa stutt og skýrt heiti á íslensku og ensku. Að jafnaði er notað smærra letur í töflur en texta. Töflurnar skulu vera skýrt upp sett- ar og ekki innihalda annað en nauðsynleg- ar upplýsingar. Huga ber vel að því að ljóst sé hvað er í hverjum dálki og hvaða einingar eru notaðar. Ef hægt er að koma efni töflunnar fyrir í línuriti er það æski- legra. Tilvitnanir Vitnað skal til erlendra höfunda með eftirnafni og útgáfuártali, t. d. (Walker 1959), Walker (1959), Wager og Brown (1968), Gibson o. fl. (1966). íslenskir höf- undar skulu nefndir fullu nafni, t. d. Þor- leifur Einarsson (1968), (Ingimar Óskars- son o. fl. 1977). Sé vitnað í rit þar sem höfunda er ekki getið skal nota nafn útgef- anda, titil verksins eða Anonymus (eða N. N.), eftir því sem best á við hverju sinni, t. d. Hagstofa íslands (1972), Al- mannavarnir (1978), Vallholtsannáll (1661), Anonymus (1878). Sé vitnað í einstakling sem heimild að óbirtum upplýsingum, skal hans getið með nafni í textanum en að jafnaði ekki í heim- ildaskrá, t. d. (Jón Benjamínsson, munn- legar uppl. 1988). Höfundar eru beðnir að hafa það í huga að tilvitnanir í handrit sem eru á hinum ýmsu stigum vinnslu á milli handritsdraga og útkomu eru vandræða- mál. Örlög slíkra handrita eru í mörgum tilvikum óviss og dæmin sanna að ýmislegt getur komið fyrir þau. Það er því mjög óæskilegt að vitna í slíkt, enda er í flestum tilvikum unnt að komast hjá því. Vitna skal til mynda og tafla í textanum á viðeigandi stöðum annars skoðast mynd- ir og töflur óviðkomandi efni greinarinnar og ritstjórn getur ákveðið að fella þær brott. Heimildaskrá Heimildaskrá ber fyrirsögnina HEIM- ILDIR. Henni er raðað eftir stafrófsröð höfunda, ef þeir eru þekktir. Nöfn er- lendra höfunda skal skrá samkvæmt eftir- nafni, í samræmi við venjur í alþjóðlegum fagtímaritum. íslendinga skal skrá eftir fornafni, í samræmi við reglur íslenskra bókasafna. Sé höfundur óþekktur má raða efninu samkvæmt útgefanda, titli, eða Anonymus. Höfundar bera fulla ábyrgð á því að rétt sé farið með heimildir og þær rétt skráðar. Þeir eru áminntir um að hafa ekki rit í heimildaskránni nema í þau sé vitnað. Við tímaritsgreinar og ritraðir skal til- greina: Höfund, útgáfuár, heiti greinar, tímarit, árgang og blaðsíðutal. Við bækur og sérprentaðar skýrslur skal tilgreina: Höfund, útgáfuár, heiti bókar, útgefanda, útgáfustað og blaðsíðufjölda. Við kort skal tilgreina mælikvarða. Við námsrit- gerðir sem ekki hafa verið gefnar út skal taka fram að um óútgefið efni sé að ræða. Um handrit í söfnum skal fara eftir skrán- ingarreglum safnsins. I öðrum tilvikum skal taka mið af þessu og þeim dæmum sem gefin eru hér á eftir. 119

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.