Náttúrufræðingurinn - 1937, Page 44
38 N ÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
iiisiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiDiiiiiiiiiimuiiiiiin
lægra en þeir, sem f jær voru, alveg eins og í „bíói“ eða leikhúsi nú
á dögum. Á borðinu í miðjum salnum voru líkin krufin, en borð-
inu var hægt að snúa um lóðréttan ás, þannig að áhorfendurnir
gætu sem bezt fylgt athöfninni. Tíðast voru leikhúsin tvílyft, og
tók salurinn upp í gegnum báðar hæðir hússins, alveg upp að þaki.
Kringum salinn að ofan voru þá svalir, líkt og í Alþingishúsinu
hér, eða eins og „balkon“ í leikhúsi, þar sátu konungar og aðrir
þjóðhöfðingjar. Veggir salsins voru skreyttir með beinagrindum
manna og dýra, eða öðrum líffærum, sem geymd voru í glösum
(í vínanda). Sumstaðar voru aðeins hafðar tvær beinagrindur,
önnur úr manni, en hin úr konu, til þess að „skreyta“ salinn, og
áttu þær þá að tákna foreldra mannkynsins, Adam og Evu, og á
milli þeirra var þá sett tré, tréð fræga úr aldingarðinum í Eden.
Krufningar líka hafa sennilega ekki verið neinir hversdags við-
burðir, heldur farið fram sem hreinar og beinar leikhússýningar,
þar sem rektor háskólans og ýmsu öðru stórmenni var sérstaklega
boðið. Tilbrigðasniðið á sýningum þessum sést gleggst á því, að
hinir tignu gestir skemmtu sér oft á annan hátt um leið, og það
svo mjög, að öllu velsæmi var ofboðið. Sagt er einnig, að það hafi
komið fyrir einhvers staðar að hætta varð sýningu, vegna þess
að aðal-persónan í leiknum, glæpamaðurinn, sem hengdur hafði
verið og krufinn skyldi, rankaði allt í einu við, þegar farið var
að skera í hann.
Þótt okkur nútímamönnum finnist rannsóknir sem þessar hafa
á sér nokkuð hjákátlegan og miður smekklegan blæ, verður því
ekki neitað, að hér var að skapast grundvöllurinn að líffærafræði
vorra tíma. Fornaldarbókmenntirnar, sem miðaldirnar höfðu lif-
að á hingað til, urðu nú smám saman að þoka til hliðar fyrir þeirri
þekkingu, sem fékkst við skurðarborðið, — þar skapaðist leyfð,
sem komandi kynslóðir skyldu auka og margfalda.
Á. F.