Náttúrufræðingurinn - 1941, Blaðsíða 6
100
N ÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
hann sig niður í fjarðar-álana, og fer þá fáum sögum af honum úr
því. Oft er í fylgd með honum eitthvað af marsvíni (Globice-
phalus melas), því beitusmokkurinn er einmitt ein aðal-fæða þess,
og er það því sjálfsagt honum og ferðum hans að mestu að þakka
að marsvínið leggur leið sína hingað norður í höf (Shetlandseyj-
ar, Færeyjar, ísland) síðari hluta sumars og á haustin. Búrhvelið
lifið einnig mikið á smokk.
Um þýðingu beitusmokksins hér við land fyrr á tímum, segir
Þorvaldur Thoroddsen m. a. í „Lýsing íslands“:
„Árið 1698 er þess getið í Hestsannál, að mikill smokkfiskur
hafi rekið nyrðra og jafnframt verið mikill hákarlsafli. Guðlaug-
ur Sveinsson prófastur í Vatnsfirði getur þess, að 1772 og 1773
hafi verið mikill kolkrabbareki á Vestfjörðum og segir hann
smokkfiskana hlaupa á land með ámátlegu ýlfri undan steinbítum
og háfum, sem elta þá.1) Á afliðnu sumri 1817 rak ótölulega
mergð af smokkfiski syðra í Faxaflóa, einkum í Kollafirði og inn
til Sunda.2) í október 1852 var mikil smokkganga á Eyjafirði
og rak mest innan til á Oddeyri.3) 1862 rak afarmikið af smokk-
fiski við Norður- og Austurland, á Eskifirði, Raufarhöfn, Siglu-
firði og Eyjafirði 23. september og næstu dægur. Á Akureyri
þakti hann allar fjörur að vestanverðu frá Oddeyrartanga inn á
leirur, „svo undrun þótti gegna,“ sóttu menn utan að heila byttu-
farma til beitu og sveitamenn á 3—6 hesta frá bæ „og ætluðu
sumir að borða hann sjálfir og sumir að gefa hann skepnum.4)
1869, fyrstu dagana í október, rak enn fádæmi af kolkrabba á
Eyjafirði við Hrísey, Akureyri og víðar.5 *) Öllum þessum smokk-
göngum fylgdi hlaðafli af fiski. Árið 1874 rak fjarska mikið af
smokkfiski við ísafjarðardjúp, í Skutulsfirði og svo að segja inn í
hvern fjarðarbotn.0) Eins voru miklar kolkrabbagöngur vestra
1891 og 1894 og 1901 var í byrjun septembermánaðar óvanalega
mikil smokkganga inn á hverja vík á Hornströndum.7) Á Vest-
fjörðum lærðu menn af frakkneskum duggurum að nota sérstaka
smokköngla"8).
1) Guðlaugur Sveinsson: BeSkrivelse over et Molluscum Sæpia. (Is-
landske Maanedstidender I, Hrappsey 1774, bls. 54—57).
2) Klausturpóstur I, bls. 7. 3) Norðri I, bls. 5. Norðanfari I, bls. 75.
4) -íslendingur III, bls. 107. Norðanfari I, bls. 69. 5) Norðanfari VIII,
bls. 83. 6) Norðanfari XIII, bls. 122. 7) Þjóðviljinn V, bls. 118. VIII,
bls. 136. XV, bls. 203. 8) Norðlingur II, bls. 129, 154. Norðanfari XVI,
bls. 60.