Náttúrufræðingurinn - 1941, Qupperneq 18
112
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
þursaskeggsmóar1) nokkrir þar á láglendinu. Inni í dalnum er
mólendi útbreiddasta gróðurfélagið, einkum krækilyngs-2 *) og
hrísmóar,8) nokkuð er þar af bláberjalyngi,4) og víði.5) Skúfar eru
þar á stangli. Víða í lyngmóunum eru gulgráar skellur af hrein-
dýramosa0) og fleiri skyldum tegundum. Landið er yfirleitt
mjög þurrt. í valllendisbollum og dældum er finnungur7) aðal-
tegundin. Hingað og þangað í lægðum eru mýrasund, helztu
tegundir þeirra eru klófífa,8) mýrafinnungur'4) og hengistör.10)
Vaxa þær ýmist allar saman eða einhver ein þeirra verður ríkj-
andi. í Laugardalnum er gróðri líkt háttað. Þó er mýrlendið þar
tiltölulega miklu víðlendara en í Ögurdal, og sums staðar næst-
um jafnáberandi og mólendið. Hvarvetna á melum er melasól11)
ein hin algengasta tegund allt niður undir sjávarmál. Á lausum
melum er hún stundum eina tegundin.
í Laugardal innanverðum er víðlent birkikjarr. Allt er það
þó lágvaxið og víða jarðlægt. Mikill hluti þess er litlu meira en
hnéhátt, en í giljum og drögum er það nokkru hærra og allt að
því mannhæðarhátt. í undirgróðri þess, sem er mikill, eru hrúta-
bcrjalyng,12) lyngjafni10) og blágresi14) mjög áberandi tegundir.
Birkið er yfirleitt mjög blaðsmátt og áreiðanlega er margt af
því kynblendingur bjarkar og fjalldrapa, ef ekki er um sérstök
afbrigði að ræða. Annars er íslenzka birkið enn lítt rannsakað,
en það er trúa mín, að þar sé um að ræða ýmiss afbrigði, ef það
þá ekki eru fleiri en ein tegund. Nokkurt birki vex einnig í
Ögurdal, en miklu hafði það verið meira áður, en leifar þess
nú helzt að finna í urðum uppi í hlíðum í skjóli, þar sem stór-
grýtisbjörg hafa hindrað framrennsli urðarinnar.
Tangarnir milli fjarðanna sunnanvert við Djúpið eru með
líku gróðrarfari og nú er lýst. Hálsarnir eru allir fremur lágir
með urðum og skriðum, eiginlegt undirlendi er lítið, en landið
allt þurrt og fremur gróðursnautt, einkum eru valllendi og mýr-
lendi lítið áberandi.
1) Elyna Bellardi. 2) Empetrum nigrum. 3) Betula nana. 4) Vacci-
nium uliginosum. 5) Salix. 6) Cladonia. 7) Nardus stricta. 8) Eriphorum
polystachium. 9) Scirpus cæspitosus. 10) Carex rariflora. 11) Papaver
radicatum. 12) Rubus saxatilis. 13) Lycopodium annotinum. 14) Gera-
nium silvaticum.