Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1941, Side 50

Náttúrufræðingurinn - 1941, Side 50
144 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN um Náttúrufræðingnum framtíð. Og þó er hér að ræða um fag- legt rit, sem aldrei er hægt að ætlast til að nái jafnmikilli út- breiðslu og tímarit, sem flytja efni um allt milli himins og jarð- ar, enda þótt vatnsborið sé með köflum, eins og að líkum lætur. Ef við lítum til nágrannalandanna, þar sem ég þekki bezt til, hefir útgáfa náttúrufræðilegra tímarita sízt reynzt betur en hér. í Danmörku er gefið út tímaritið „Naturens Verden“. Það er um það bil helmingi stærra en Náttúrufræðingurinn, en kostar einnig 16 d. kr. í stað þess að hann hefir hingað til aðeins kostað 6 ísl. krónur. Rit þetta nýtur árlega opinbers styrks og bak við það stendur öflugt félag, þar sem er ,,Dansk Naturhistorisk Forening11. Þrátt fyrir það var hag þess þannig komið rétt fyrir stríðið, að í ráði var að draga saman seglin að verulegu leyti, og þó voru útgáfuskilyrði miklu betri í Danmörku en hér, a. m. k. þá (Danir framleiða t. d. pappír) og þjóðin meira en 30 sinnum mannfleiri en Islendingar. Svipaða sögu má segja um norska tímaritið ,,Naturen“. Það er elzta náttúrufræðitímarit á Norð- urlöndum. Einnig það er um helmingi stærra en Náttúrufræð- ingurinn, en kostar líka um það ibil helmingi meira. Það hefir notið opinbers styrks í langa áraröð og bak við það stendur ein- hver glæsilegasta menningarstofnun Norðmanna, þar sem er „Bergens Museum“. Ástæðan til þess, að Náttúrufræðingurinn hefir getað þrifizt nokkurn veginn í þau tíu ár, sem að baki eru lögð, þannig að hann er nú ekki aldauða, á rætur að rekja í ýmsar áttir. í fyrsta lagi er í þessu landi allstór hópur manna, sem hefir yndi af því, að festa hugann við náttúrufræðileg efni og kýs heldur „leiðin- legan lestur“ um eitthvað raunverulegt en rósamiál um allt og ekkert. Margir þessara manna tóku ástfóstri við Náttúrufræð- inginn þegar í byrjun, og hafa haldið tryggð við hann síðan gegnum þykkt og þunnt. í öðru lagi á Náttúrufræðingurinn að verulegu leyti líf sitt að þakka ósíngirni íslenzkra náttúrufræð- inga. Þeir hafa af fúsum vilja lagt fram krafta sína endurgjalds- laust, en á iþann hátt hefir ritið getað fengið Iþví nær allt efni fyrir sama og ekki neitt í tíu ár. Auk þeirra, sem talist geta náttúrufræðingar, hafa einnig ýmsir aðrir sent ritinu greinar, sem því hefir verið mikill fengur í, og aldrei krafizt neins í stað- inn. Náttúrufræðingurinn hefir rétt frá byrjun verið prentaður á sama stað, í ísafoldarprentsmiðju. Má óhætt fullyrða, að án þeirrar lipurðar og víðsýni, sem blaðið hefir alltaf átt að mæta
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.