Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1941, Page 90

Náttúrufræðingurinn - 1941, Page 90
182 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN S. VA ONSSON: MURTUMERKINGAR Eins og 'kunnugt er varð dr. Bjarni Sæmundsson fyrstur ís- lenzkra manna til iþess að rannsaka Þingvallavatn og lífið í því. í því sambandi lét hann merkja 500 murtur. Ástæðan til þess- ara athugana mun hafa verið þörfín á að fá úr því skorið, hvort murta-n væri ungbleikja eða sérstakt afbrigði. Þetta var mjög þýðingarmikið atriði, þar sem búendur við vatnið veiddu óhemju mikið af murtu árlega og væri um ungbleikju að ræða, hlaut ibleikjustofninn að bíða ógurlegt afhroð við slíka rányrkju. Nú þykir úr þessu skorið til fulls, fyrir atheina Fiskideildar At- vinnudeildar Háskólans, undir stjórn Árna Friðrikssonar, og vísast til ritgerðar hans um það efni. („Um murtuna í Þingvalla- vatni með hliðsjón af öðrum silungi í vatninu.“ Nóttúrufr. IX. ár, 1939, bls. 1—30). Árið 1899 lætur dr. Bjarni merkja 500 murtur eins og fyrr segir. Merkingin var x því fólgin að af 470 var sneyddur veiði- ugginn (fituugginn), en af 30 var sneydd efri brún sporðsins (Andvari 1899, bls. 80). Þessi merking er mjög ófullkomin, þar sem ekki verður fylgst með einstaklingnum, auk þess getur alltaf farið svo að uggar þessir skerðist án merkinga, af ýmsum ástæðum, og er þá rugluð niðurstaðan. Eftir því, sem ráðið verður af gögnum þeim, sem fyrir hendi eru, hefir meðalstærð hinnar merktu murtu verið 23—24 cm, eða sem næst meðal- lengd Þingvallamurtunnar nú, hér um bil 40 árum síðar. Af þess- um 500 murtum telur dr. Bjarni sig hafa endurheimt (fengið og haft spurn af) 67 fiska eða 13,4%. Hann telur vafalaust að fleira hafi endurveiðzt, en menn ekki tekið eftir merkinu, þar sem það sé mjög óljóst. Endurveidda murtan skiptist þannig niður á tímabil: Sumarið og haustið 1900 endurheimti. dr. Bjarni 20 fiska og hafði spurn af 9. 1901 fékk hann engan, en 1902 endur- heimti hann 31 og hafði spurn af einum. 1903 fékk hann enn 6 fiska. Af þessum 67 endurveiddu fiskum reyndust 4 að hafa náð bleikustærð, eða 6% af endurveidda fjöldanum. Hins vegar telur dr. Bjarni (Andvari 1902, bls. 96), að 19 fiskar hafi nóð deplu- stærð, en hann ályktar að um tvenns konar murtu sé að ræða,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.