Náttúrufræðingurinn - 1941, Side 95
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
187
um vitum við nokkur skil þegar um útdauðar tegundir er að
ræða, og hefir því einstakt tækifœri gengið úr greipum manna.
V-onandi á það aldrei eftir að koma fyrir íslenzka fiskimenn,
að eyðileggja af rænuleysi jafn fágætan fis'k, þótt þeir fyndu.
Á. F.
PERLUVEIÐAR í BAYERN
Flestir af lesendum Nláttúrufræðingsins hafa sjálfsagt oft
lesið um eða heyrt getið um ,,perluveiðar“ í Suðurhöfum. Perl-
urnar, sem þar fást, eru oft hin mestu þing, en þær myndast í
perluskelinni (Meleagrina margaritifera), sem á heima í Ind-
landshafi. En svo er til önnur tegund af perluskel, vatnaperlu-
skelin (Unio margaritifera) og heimkynni hennar eru í ám og
vötnum, meðal annars í Evrópu, einnig á Norðurlöndum, en ekki
ihér á íslandi. Perlurnar úr henni eru yfirleitt miklu verðminni
en úr hinni, en þó er hún sums staðar veidd vegna þeirra, t. d.
í Bayern á Þýzkalandi. Hún er þar á um 200 stöðum í smáám
og lækjum, og hafa síðustu 50 ár fengizt þar eigi færri en 200 000
perlur eða sem svarar um 4000 á ári. Veiðarfærið er óbrotið,
tvíálmaður gaffall á löngu skafti ,en með honum eru skeljarnar
grafnar upp úr sandinum \ botni ánna. Þessi veiði endist enn,
þótt stofninum sé ekkert hjálpað gegn mannshöndinni, t. d. með
ræktun, en það á rót sína að rekja til þess, hve væg veiðin er. Á
hverjum stað er nefnilega aðeins veitt 12. hvert ár, en 11 næstu
árin er svo skelin friðuð á þeim staðnum. Árlega er því aðeins
veitt á 16—17 stöðum til skiptis, enda þótt „miðin“ séu um 200
talsins. Dýrastar eru þær perlur, sem eru alveg kúlumyndaðar
og mjallhvítar að lit, en fyrir þœr hefir fengizt um 100 Rm, eða
sem svaraði 260 kr. fyrir stríð.
Auk þeirra tveggja .,perlutegunda“, sem fást úr perluskelj-
unum, eru búnar til perlur í stórum stíl, fyrir rniklu minna
verð en hægt er að selja hinar, og eru því tilbúnar perlur í yfir-
gnæfandi meirihluta á markaðinum. Af slí'kum perlum eru til
tvær aðalgerðir, Parísar-perlur og rómverskar perlur. Róm-
versku perlurnar eru gerðar úr alabasti, en utan á þær er smurt