Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1943, Síða 21

Náttúrufræðingurinn - 1943, Síða 21
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 155 Ingólfur Davíðsson: Fjallagróður og klettablóm. Flestir dást að fjallagróðrinum og þykir hann einkennilegur vegria smæðar sinnar, vaxtarlags og lítilla, litfagurra blóma. Fjallajurtirnar eru eins og dvergar hjá risa i samanburði við þroskalegan láglendisgróður. Dvergvaxin afhrigði ýmissa jurta eru ræktuð vegna smæðar sinnar eða fáránlegs útlits. En fjalla- gróðurinn er samt venjulega fagurskapaðri. Það er meiri yndis- þokki yfir honum heldur en „tilbúnu“ afhrigðunum. Jurtir fjall- anna eru venjulega I-ágar i loftinu, en þær þekja oft ófrjótt land urðir og klelta eins og fagurgræn ábreiða, ívafin marglitum myndum. Veðráttan cr hörð i heimkynnum þeirra svo að þeim er hentast að hjúfra sig niður að moldinni. Grasvíðirinn okkar eða smjörlaufið, sem kvíærnar mjólka svo vel af, skriður niðri í grasinu og er sannkallaður dvergrunni. Hvílíkur vaxtarmunur á honum og bróður hans, gulvíðinum, sem oft réttir sig upp og mynd- ar stóra runna. Margir dvergrunnar vaxa mjög hægt, stofn þeirra þarf stundum hálfa öld til þess að verða 1 cm í þvermál. Háfjöllin og heimskautalöndin eru aðalheimili þeirra. Flestir kannast við fjallfuruna, sem allviða er gróðursett hér á landi. I sæmilegu lofts- lagi á láglendinu verður hún allvænl tré eins og l. d. í furulund- inum á Þingvöllum. En fvrir norðan eða ofan takmörk skóganna er hún ofurlágnr, skríðandi dvergrunni, jafnvel aðeins 30—40 cm á hæð. Hún gctur samt breitt úr sér og þakið talsverðan blett. HoIlasólejrjan okkar, sem prýðir holt og melarinda á vorin með stóru hvítu blómunum, er einnig ágætt dæmi um fjallajurt Blöðin, rjúpnalaufið, standa i hvirfingu niður við jörðina og eru liærð að neðan til varnar kulda og ofmikilli útgufun. Þið kann- ist líka við krækilyngið, sauðamerginn og' sortulyngið — harð- gerða dvergrunna, sem algengir eru á íslandi. Einnig má nefna ýmsar urtir t. d. lambagras, vetrarblóm, sem blómgast á melkoll- um á vorin þóll skaflar liggi rétl hjá, og ýmsa aðra steinbrjóta. Allur þessi gróður þolir erfið kjör og getur þrifist á stöðum, þar sem hávaxnar jurtir mundu fljótt líða undir lok. Þær mynda þúfur eða þéttar gróðurhreiður. Þetla ver þær gegn þurki og snjórinn hlífir oft þessum lágvaxna gróðri. Þéttir, lágvaxnir laufsprotarnir hlífa liver öðrum. Fjallagróðurinn er lágur í loft- 11*

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.