Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1943, Page 25

Náttúrufræðingurinn - 1943, Page 25
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 159 ekki aðeins fjallajurtir, lieldur stundum ættaður úr öðrum heim- kynnum. Erinacea pungens t. d. er klettajurl sunnan frá Spáni og þrifst bezt i þurrk og sólskini. Á hinn bóginn er t. d. smjör- laufið heimskauta- og fjallajurt, sem þrífst einkum vel i snjó- dældum, þar sem snjóinn leysir seint að vorinu. Það þolir vel rakan jarðveg hluta úr árinu. Flestar fjallajurtir eru fjölærar. Aðeins fáar einærar eins og t. d. dýragrasið, eða tvíærar. Margar eru sígrænar undir snjónum. Þetta er eðlilegt, þegar þess er gætt að vaxartiminn er stuttur, jafnvel aðeins fáeinar vikur 1 heimkynnum þeirra. Þær verða að nota þennan stutta tíma lil að afla matarforða. Einærar jurtir, eða fjölærar, sem fella ldöðin á haustin, eru ver settar við slík skilyrði. Þær verða að nota ögn af hinum örskamma vaxtartíma til að mynda hlöð áður cn matarvinnslan getur hafizt að nýju. Sígræni gróðurinn getur hyrjað að afla matar undir eins og snjórinn er farinn eða jafnvel fyrr, því að ögn kemst af birtu gegnum þurran snjó og moldin er oft ])ýð undir honum. Auk þess þurfa fjallajurtir aðeins lágan hita til vaxtar, mun lægri en láglendisjurtirnar. Sumar háfjalla- jurlir geta jafnvel vaxið og aukið ögn efnsmagn sitt við aðeins 2 —3 stiga hila. Eflaust hjálpar hinn dökkgræni blaðlitur og hið tæi’a loft jurtunum eitthvað við það að afla geislaorku frá sól- inni. Og líklega er talsvert af þeirri orku notað til þess að hækka hilann inni í hlöðunum. Getur líka verið, að eitthvað af hitanum scm myndast við öndun, sé notað í sama tilgangi, því að aug- Ijóst er að sumar fjallajurtir framleiða talsverðan hita. Ella gætu I. d. ekki blómin á Soldanella brætl sér leið upp úr snjónum jafn auðveldlega og raun ber vitni. Þar eð fjallgróðurinn, sem við ræktum i steinhæðunum er að jafnaði mjög lágvaxinn, þá stenzt hann illa samkeppni við liáan og þrekvaxinn gróður. Verð- ur þess vegna að varast að gróðursetja stórvaxnar jurtir í stein- hæðunum, eða þær jurtir, sem sá sér mjög og hreiðast ört út. Hinn opni eða gisni gróður steinhæðanna er vel til þess fallinn að fylgjast vel með lífi jurtanna, sem þar vaxa. Við getum skrif- að hjá okkur hvenær sjálfsána fræið spírar, við hvernig kjör tegundirnar þrífast bezt, athugað blómgunartíma, aldinþroskun og lífsskeið eða aldur gróðursins o. s. frv. Helzt ber að rita hjá scr allt hið helzta árum saman. Getur við það fengizt dýrmæt vitneskja og reynsla um lifnaðarhætti jurtanna. Er ekki liætt við að of miklum fróðleik sé safnað, heldur þvert á móti. Eigi ræktunin að heppnast vel til langframa, þarf að afla vitneskju um æði margt. Hvers vegna t. d. dóu sumar fjölæru jurtirnar um

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.