Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1943, Page 28

Náttúrufræðingurinn - 1943, Page 28
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 102 stofninn minnkar niður í 600,000 eða aðeins um tæp I0V2. Af þessu sést það, að sama breyting hefir miklu meiri áhrif á stofn þann, þar sem viðkoma og dánartala var há, lieldur en á stofn þann, sem liafði litla viðkomu. Hér tel ég að mergur málsins liggi. Hjá rjúpunni er eðlileg dánartala um eða yfir 60% árlega. Dauðaorsakirnar eru margar. Nokkur prócent verða valnum að bráð, nokkur prócent falla fyrir byssu veiðimannsins, enn aðrar farasl í óveðrum og syo framvegis. Samanlagt verður þetta að meðaltali um eða yfir 60%. En það er mikill munur á því, að segja að þetta verði það að meðaltali, eða að dánarprócentan verði þetl á hverju ári. Við getum því aðeins vænsl þess, að þessi dánarprócenta haldist svipuð frá ári lil árs, ef hver einstakur þáttur hennar er mjög Iílill og þættirnir um leið mjög margir. Ef einliverjir fáir þættir eru miklu ráðandi, eins og t. d. veðurfar, veiðar, sjúkdómar eða þessháttar, má gera ráð fyrir miklum hreytingum á dánarprócent- unni, og þar sem dánarprócentan er svo há, hafa hreytingar þess- ar mikil áhrif á slærð stofnsins eins og áður var sýnt. Þetta, sem hér hefir verið sagl með orðum, má setja mikið greinilegar fram með líkindareikningi. Niðurstaðan verður hin sama. Hjá þeim dýrastofnum, sem liafa mikla'viðkomu er eðli- legt að búast við mikið örari sveiflum á stærð stofnsins heldur en hjá þeim tegundum, þar sem viðkoman er lítil. Af þessu er það Ijóst, að hvert nýlt atriði, sem verður rjúp- unni að fjörtjóni, jafnvel þótt ekki nemi meiru en fáum prcent- um, hlýtur þegar á næsta ári að hafa allvernleg áhrif á stærð stofnsins. Til dæmis hljóta rjúpnaveiðar að minnka stofninn verulega, ef þær eru reknar svo nokkru nemi. Hinsvegar er hægt að sýna fram á það, með samskonar útreikingum, að lítil liætta er á því, að fugli, verði algjörlega útrýmt með veiðum, ef við- koman er mikil eins og hjá rjúpunni. Gróðurrannsóknir á Flóaáveitusvæðinu nefnist mjög fróðleg ritgerð eftir Steindór Steindórsson, sem Búnaðarfélag íslands hefir gefið út. Þar er i höfuðdráttum gerð grein fyrir gróðurfari áveitusvæðisins og þeim gróðurhreytingum, sem þar hafa gerzt síðan tekið var að vcita á. Þessarar ritgerðar verður getið nánar síðar. J. A.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.