Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1943, Síða 36

Náttúrufræðingurinn - 1943, Síða 36
170 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Sigurður Pétursson: Náttúrulögmál og mannasetningar. Það má vafalaust líta svo á, að allar ályktanir mannsins bæði fyrr og siðar séu mannasetningar, þ. e. séu orðnar lil i huga mannsins, án þess að ti’yggt sé, að þær hafi stoð í veruleikanum. Sumir heimspekingar eru jafnvel þeirrar skoðunar, að hlutirn- ir séu aðeins til sem hugmyndir, tilvera þeirra byggist á því, að þeir séu hugsaðir. Á Iiinn hóginn er þvi líka haldið fram, sem er miklu sennilegra, að til sé einhver veruleiki óháður mannlegri hugsun. Veruleiki, sem vér skynjum, en getum þó aldrei verið vissir um, livort vér skynjum rétt eða gerum oss rétta hugmynd um. Þegar vér tölum um náttúruna, þá eigum vér við þennan veruleika, og þau lögmál, sem hann er bundinn nefnum vér náttúrulögmál. Maðurinn hefir þá ákaflega einkennilegu ástriðu, að vilja fyrir alla muni gei-a sér grein fyrir tilverunni, fyrir náttúrunni og lög- málum hennar. Hann skoðar og rannsakar náttúruna, fyrst og fremst með þeim skynfærum, sem honum eru gefin, en auk þess með allskonar áhöldum, sem hann hefir hugsað upp og gert sér. Niðurstöður þeirra skynjana renna svo saman I hug- rnynd um verideikann eða af veruleikanum, sem aldrei verður þó sagt um með fullri vissu, hvort sé rétt eða röng. Yið marg- ítrekaða endurtekningu sömu skynjana og sömu niðurstaðna fara líkurnar fyrir því vaxandi, að hugmyndin sé rétt og að vér höf- um fundið eitt af lögmálum náttúrunnar. En'hvort sannleik- urinn er fundinn, það getum vér ekki vitað með vissu. „Hvað er sannleikur?“ átti Pílalus að hal'a spurt Krist forð- um, og svo liafa margir spurt síðan. Leitin að því rétta, sann- leiksleitin, er undii’rót allrar þekkingar, viðfangsefni allra vís- indalegra rannsókna. Þekking er einskonar safn af ályktunum, sem hafa misjafnlega mikið sannleiksgildi eftir þvi, hversu mörg og sterk rök liggja þeim til grundvallar. Vér gerum athuganir, drögum af þe.im ályktanir, leggjum fram tilgátur. Fleiri rök eru lögð fi’am til sönnunar, vissan fer vaxandi, tilgálan verður að kenningu og kenningin að síðustu að lögmáli. Vér getum litið svo á, að full vissa sé fengin fyrir því, að jörð- in hreyfist eftir vissu lögmáli umliverfis sólina. Fyrir daga Kop-

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.