Náttúrufræðingurinn - 1948, Page 23
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
69
á yfirborð þessa jarðvatns hvergi orðið meiri en ein loftþyngd.
Þrýstingsins vegna getur vatnið því lialdið jafnmikilli kolsýru í
upplausn í uppsprettunum og í hraununum. Hans vegna hefur
hún sömu aðstæður til að skiljast frá jarðvatninu og lindar- eða
lækjarvatninu.
En hvernig stendur þá á því, að kolsýran er ekki rokin burt úr
jarðvatninu, áður en það kemur fram í uppsprettunum?
Skýringin hlýtur að vera sú, að kolsýrulag liggur yfir jarðvatns-
fletinum niðri í hraununum. Hér er auðvitað ekki átt við samfellt.
lag né hreina kolsýru, heldur hitt, að í vissu lagi hraunsins, næst
yfir jarðvatnsfleti, er hver glufa í berginu fyllt kolsýru, misbland-
aðri öðrum lofttegundum, en ekki fyllt venjulegu andrúmslofti.
Langsneið af lirauni með kolsýru, skýringarmynd. — I. undirlag hraunsins, vœntan-
lega nokkru péttara og skár vatnshelt en hraunið sjálft. II. neðsta lag liraunsins, fyllt
kolsýrubornu jarðvatni. III. iniðlag hraunsins, fyllt kolsýrulofti. IV. efsta lag hrauns-
ins, fyllt andrúmslofti. Öi'varnar benda á útstreymisaugu kolsýruloftsins.
Við slík skilyrði verður hæfileiki vatns að leysa upp kolsýru miklu
meiri en þar, sem venjulegt andrúmsloft leikur um yfirborð þess.
Til dæntis getur mjög óveruleg kolsýra tollað i vatni-, sem stendur í
íláti í venjtdegu andrúmslofti við venjulegan stofuhita og loftþrýst-
ing, en ef hrein kolsýra er ein lofttegunda í snertingu við vatnsflöt-
inn og skilyrðin söm að öðru leyti, þá leysist upp h. u. b. einn lítri
af kolsýru í einum lítra vatns.
Kolsýra er þung lofttegund. Það rúmmál af .venjulegu andrúms-
lofti, sem vegur 1 g, vegur af kolsýru 1,53 g. Þess vegna blandast
hún tiltölulega seint andrúmsloftinu, ef lnin liggur undir því. Enn
seinni verður sú blöndun þar, sem kolsýran er lokuð inni í glufum
og gjám neðanjarðar í blöðróttu og sundur sprungnu lirauni, sem