Náttúrufræðingurinn - 1952, Blaðsíða 3
Sigurður Þórarinsson:
HVERFJALL
II. Aldur Hverfjalls og myndun
Túíílögin norður af Hverfjalli
I fyrri Jiluta þessarar ritgerðar var sýnt fram á, að Hverfjall er
byggt úr lagskiptu túffi.
Þetta túff, sem er grásvart í fersku brotsári, er að miklu leyti
basaltgler, meira eða minna dökkt að lit. Brotlilutfall þess er, sam-
kvæmt ákvörðun Tómasar Tryggvasonar, > 1.60 en 5= 1.61, og það
ber engin merki ummyndunar í palagónít. Hér er því ekki um móberg
að ræða í venjulegri skilgreiningu þess hugtaks. í túffinu eru, sem
fyrr getur, klessur af hraunfrauði hér og þar; í þessiun hraunklessum
eru feldspatdílar, og samkvæmt ákvörðun Tómasar er feldspatinn
plagíóklas (basískur labrador eða súr bytownite). Það er alveg frá-
leitt að ætla, að þetta þunnlagskipta túff hafi runnið sem eins konar
öskugrautur, enginn vafi er á, að það er myndað í sprengigosi.
Prófessor Tiausti heldur því raunar frarn í grein sinni um Hverfjall
(bls. 116 og 118), að gígveggir af Hverfjalls- og Hrossaborgargerð,
þar sem stór björg er að finna í lagskiptu, fíngerðu túffi, hafi alls
ekki getað myndazt við sprengigos, en þetta hefur nú samt skeð
þarna, og nærtækt dæmi um, að slíkt skeður raunverulega, er
sprengigígur, sem myndazt hefur fyrir augunum á okkur íslenzkum
jarðfræðingum alveg nýverið, nefnilega Axlargígurinn í Heklu.
Hann þeytti svo sannarlega upp margra tonna björgum af og til og
hlóðst upp sem sprengigígur, án þess að hraun ylli nokkru sinni
yfir barma hans, en engu að síður er gosmölin í honum fallega Jag-
skipt (10. mynd) og sum lögin mjög fíngerð, þótt ekki séu þau að
jafnaði eins þunn og Hverfjallslögin. Næstum nákvæmlega sams
konar lagskipting og í Hverfjalli er, samkvæmt lýsingu C. W.
Firth’s (1930), í liverfjallinu Crater Hill á Aucklandeiði. Svipuð
er og lagskiptingin í hverfjallinu Pupuke, en það eldfjall er, sain-
NáUúrufrceÖingurinn, 4. hefti 1952 10