Náttúrufræðingurinn - 1952, Qupperneq 12
154
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
hverasvæðinu austan í Námafjalli, en þar eru túfflögin a. m. k. 1 m
þykk. Milli efra ljósa iagsins og túffsins er 1—5 sm þykkt lag af fín-
gerðri mold, og eru því túfflögin á að gizka 100—200 árum yngri en
þetta öskulag, en um aldur þess má fá sæmilega hugmynd með því
að athuga afstöðu þess í mómýrum norðanlands til lurkalags, sem
þar er víðast að finna. Telja má nokkurn veginn víst, að mörkin
milli þessa lurkalags og ofanáliggjandi mýrarjarðvegs, sem er miklu
minna fúinn, mótsvari Jreirri snöggu loftslagsbreytingu, sem varð á
mótum brons- og járnaldar um 600 f. Kr. Efra ljósa öskulagið er
víðast næstum efst í Jiessu lurkalagi, og hef ég því áætlað aldur Jiess
2500—3000 ár, og er þá aldur Hverfjalls á að gizka 2300—2800 ár.
Hverfjall er því ekki eldra en svo, að hefði Odysseifur á sínum reis-
um komið til Mývatns, hefði hann ekkert Hverfjall fyrir fundið.
I’ess má geta, að bráðlega er von til Jiess, að hægt verði að ákvarða
aldur Ijósu öskulaganna, og þá um leið Hverfjalls, með meira öryggi
en hingað til, með mælingum á geislavirku kolefni (Carbon14), en sú
aðferð er nýlega fundin upp af amerísku vísindamönnunum Libby
og Arnold. Hafa sýnishorn af mónum hið næsta ljósu öskulögunum
verið send til Yale-háskólans (Geochronometric Laboratory) til ald-
ursákvörðunar, og hefur mér verið tilkynnt, að þau verði látin ganga
fyrir flestum öðrum sýnishornum, sem Jiangað hafa verið send til
aldursákvörðunar, vegna þess hve víðtæka þýðingu aldursákvörðun
öskulaganna geti haft. Má búast við aldursákvörðuninni fyrir næsta
vor.
Öskulagiö h
Sú staðreynd, að Hverfjall er yngra en öskulagið H3, þ. e. ekki
nema um 2500 ára gamalt, hlýtur að vekja Jiá spurningu, hvort ösku-
lag úr Hverfjallsgosinu sé ekki að finna víðar á Mývatnssvæðinu en í
túffstöbbunum norður og norðaustur af fjallinu. Jú, raunar er það
svo, að það finnst þarna víða, enda þótt mér yrði það ekki fyllilega
ljóst fyrr en sumarið 1951. Þegar sumarið 1948 hafði ég mælt nokkur
jarðvegssnið í hrauni Jdví, sem umlykur hinn forna gjallhól Ytra
Höfða suðaustan við Reykjahlíð. í þessum sniðum var eitt basalt-
öskulag mun grófara og þykkara en önnur dökk öskulög í sniðun-
um. Þetta lag er hið næsta fyrir ofan H3 og aðeins 1—3 sm Jrykkt
moldarlag á milli (sbr. snið III á 18. mynd). Eg sé af dagbókum mín-
um, að ég hef táknað þetta lag með bókstafnum h og gizkað á, að Jiað
væri úr Hverfjalli. Sumarið 1950 komst ég þó á aðra skoðun. Þá