Náttúrufræðingurinn - 1952, Síða 24
166
NÁTTIJRUFRÆÐINGURINN
Þegar Monte Nuovo myndaðist
Það vill svo vel til, að fjall eitt, sem líkist Hverfjalli mjög að bygg-
ingu, hefur myndazt að mönnum ásjáandi, það er Monte Nuovo (24.
mynd). Þetta fjall er rétt hjá smábænum Pozzuoli, sem liggur yzt við
norðanverðan Napólíflóa. Eins og fyrr getur, er það nokkru lægra en
Hverfjall eða 120 m, þvermál gígsins efst er 370 m, dýpi gígsins 117
m og halli úthliða 30°. Samkvæmt þeim lýsingum á þessu fjalli, sem
ég hef náð í (einkum í ritum Frakkanna Dauberry og Dufrénoy), er
fjallið ldaðið upp úr lagskiptri gosmöl og hallar lögunum aðallega eða
eingöngu út frá gígnum. Sama er að segja urn hið nærlæga hverfjall
Gli Astroni, sem hefur að auki innri keilu úr túffi, alveg eins og
Hverfjall. Samkvæmt samtíma heimildum (einkum riti S. Portiusar,
De conflagratione etc.) er myndunarsaga Monte Nuovo í stuttu máli
þessi: Um tveggja ára skeið, áður en gosið hófst, hafði verið mikið
um jarðhræringar á Pozzuoli svæðinu, svo að fá hús voru þar eftir
ósködduð. Þann 26. september 1538 ágerðust þessar jarðhræringar
mjög og voru nær látlausar þann dag og næsta. Þann 28. hækkaði
ströndin utan við bæinn Pozzuoli svo, að íbúarnir gátu tínt dauða
fiska úr fjörunni, sem iiafði breikkað um 200 skref. Að morgni þess
29. lækkaði dálítið landssvæði í grennd við bæinn um 4 m, og leir-
blandið vatn kom upp, en um nónbil sama dag tók þetta svæði aftur
að hækka og hvelfast upp. Aðfaranótt þess 30. rofnaði þessi hvelfing
og tók að gjósa ösku, vikri og grjóti. Á næstu 12 tímum náði fjallið
að mestu þeirri hæð, sem það hefur nú. Þann 1. október hætti gosið,
en dagana 3.-6. október kornu aftur einstöku goshrinur með nokkru
öskufalli, og ein þessara goshrina drap 24 manna hóp, er liafði hætt
sér upp á fjallið þ. 6. október. Glóð sást í gígbotninum næstu tvo
mánuðina, og smáumbrot voru af og til í gígnum til janúarloka
1539.
Þessi frásögn kemur ekki illa heim við þá hugmynd, sem hér að
framan liefur verið látin í Ijós um gang gossins í Hverfjalli út frá
athugunum á gerð þess og dreilingu öskunnar út frá því.
Orsakir Hverfjallsgossins
Ameríski jarðfræðingurinn H. T. Stearns telur, að sprengingar
þær, sem hlaðið hafa upp hverfjöllin á eynni Oahu, er fyrr var um
getið, hafi orsakazt af því, að bergkvika (magma) hafi komizt í beina
snertingu við vatn, annaðhvort undir hafsbotni eða í gljúpu kóralla-
kalki. Nýsjálenzki eldfjallafræðingurinn C. A. Cotton virðist hallast