Náttúrufræðingurinn - 1952, Síða 32
174
N ÁT TIJ R U F RÆ ÐINGURINN
segja talað um að senda eldflaug til tunglsins, og fólki almennt þætti
það víst ekki mjög mikil tíðindi, þó að sú fyrsta yrði send á morgun.
Og svo er það á allra vitorði, að stórveldin liugsa oft hvert til annars
í eldflaugum, og eiga víst ýmislegt í fórum sínum af slíku tagi. Það
var því engin furða, þó að mörgum hafi dottið í hug, að með þess-
um fljúgandi diskum væri eittlivert herveldið að prófa sig áfram
með fjarstýrðar eldflaugar. Tæpast var hægt að búast við því, að
framleiðandinn léti nafns síns getið.
Öllu meira ímyndunarafli en þessu hafa þeir þó verið gæddir, sem
talið hafa hina fljúgandi diska vera geimför frá öðrum hnöttum.
Hefur reikistjarnan Marz einkum verið nelnd í því sambandi, en
þaðan vænta rnenn jafnan lielzt einhvers lífsmarks. Voru þeir ótrú-
lega margir, sem héldu því fram í fyllstu alvöru, að þama væru
Marzbúar á ferð, en þeim mundi leika hugur á að kynnast nokkuð
búskaparháttum vorum jarðarbúa.
Þannig hefur ímyndunaraflið leitt fólk að margvíslegum niður-
stöðum, og ógreinileg fyrirbrigði Jiafa fengið á sig ægilegar myndir,
er fregnin af þeim barst mann frá manni.
En hvað skal segja um fyrirbrigði eins og t. d. þau, sem sáust í
borginni Washington nú í surnar? Það var nótt eina í júlímánuði.
í varðturni flugvallarins við Washington gekk allt sinn vanagang.
Flugvélar komu og fóru. Við radartækið var maður, sem fylgdist með
umferðinni í námunda við höfuðborgina. Allt í einu koma nokkrir
bjartir blettir fram í tækinu, og virtust þeir svífa yfir borginni,
stundum hægt og stundum með allt að 11.500 km hraða á klst. Gert
var aðvart á varðstöð flughersins, nokkrar mílur í burtu. Þar sást að
vísu ekkert óvanalegt í radartækinu, en með berum augum sást
kringlóttur Ijósblettur á sveimi í loftinu. Flugvélar voru sendar upp,
en þær urðu einskis varar. Það sem eftir var vikunnar, sáust öðru
hverju dularfullir ljósblettir á sveimi í loftinu frá þessum varðturn-
um, en á laugardagskvöldið keyrði þó fyrst úr hófi, því að þá svifu
þeir hópum saman fram og aftur í loftinu yfir borginni. Flugvélar
fóru enn á stúfana, en fundu ekki neitt. Nokkrir flugmannanna
töldu sig þó hafa séð einhver dularfull ljós.
Þetta lítur allt mjög einkennilega út, en getur samt haft ofur ein-
falda orsök, eða að minnsta kosti telur dr. D. H. Menzel að svo sé.
Dr. Menzel er prófessor í jarðeðlisfræði við Harwardháskóla, og
birtist viðtal við liann í viknritinu Time þ. 9. júní s.l., um hina
fljúgandi diska. Skal nú vikið hér að skýringum hans.