Náttúrufræðingurinn - 1952, Síða 49
FORN ÞURSABERGSLÖG í HORNAFIRÐI
189
6. mynd. Jökulberg undir Svíuafellsgelti í Svínafelli. — Tillitc in the mountain
Svinafell in Hornafjörður. — Ljósm. Jón Jónsson.
vel vera, að þetta sé gamall sandur, þ. e. sams konar myndun og hinir
víðáttumiklu sandar og aurar við jöklana í Skaftafellssýslum. En þar
sem jökulruðningurinn við skriðjöklana sunnanlands er mestmeg-nis
úr alveg sams konar efni og aurarnir fjær þeim, getur hér orðið erfitt
að draga markalínu.
Ofan á þursaberginu liggja víða fleiri hundruð metra þykk basalt-
lög, og hlýtur það því að vera ævafornt.
Um aldur þess skal ekkert fullyrt, en að svo komnu máli virðist
mér ekkert því til fyrirstöðu, að það sé frá því á Tertier.
Ofarlega í Svínafellsgili í Hornafirði fann ég líka í sumar berg-
tegund, sem er mjög lík bergi því, sem hér hefur verið reynt að lýsa,
en er miklu yngri. Þar virðist ekki geta verið um annað en jökulberg
að ræða, því að bæði er í því allmikið af rispuðum steinum, og berg
það, er það hvílir á, greinilega rispað. Það er 23—25 m þykkt lag.
Ofan á því liggur sá hluti fjallsins, er Svínafellsgöltur heitir, en hann
er myndaður úr bólstrahrauni (pillow lava) Þetta jökulberg virðist
vera tiltölulega ungt, ]iví að gangar, sem hér eru víða, ná ekki upp í
það. Landið virðist hér hafa rofizt allmikið, áður en þessi jökulruðn-