Náttúrufræðingurinn - 1953, Síða 22
Sigurður Þórarinsson:
Myndir úr jarðfrœði íslands I
Toppgígur Heklu
Ýmsar breytingar urðu á Heklu í síðasta gosi, en sú, sem er mest
áberandi, er myndun þess gígs, er nú myndar hátind fjallsins. Þessi
gígur hefur hækkað fjallið meira en 50 metra eða úr 1447 m í röska
1500 m, og breytt svip fjallsins verulega. Séð þvert á stefnu Heklu-
hryggsins, t. d. úr Þjórsárdal eða af Tindfjallajökli er prófíll fjallsins
ekki eins reglulega boglaga og áður, en séð í sprungustefnuna, t. d.
frá Heklu, er keilulögun fjallsins enn meira áberandi en áður.
Hér skal í stórum dráttum rakin myndunarsaga Toppgígsins.
Er Hekla tók að gjósa eftir rúmlega aldarhvíld, að morgni hins
29. marz 1947, byrjaði gosið, að því er bezt er vitað, rétt norðan í
hátindi fjallsins, en innan stundar rifnaði fjallshryggurinn að endi-
löngu, svo sem venja er í stórum Heklugosum. Fyrstu klukkutímana
var sprunga þessi eins konar eldgjá án einstakra giga, en þegar á
fyrsta degi breyttist hún í gígaröð, og voru þaxrn dag og næstu virk-
astir gígar á báðum öxlum fjallsins, en minna bar á gígnum í há-
tindi þess. Þó voru sprengingar í honum af og til og þær mjög kröft-
ugar. En er á leið fyrstu viku gossins, þögnuðu aðrir gígar fjallsins
einn af öðrum, en gígurinn í hátindinum færðist heldur í aukana,
og er vika var liðin frá byrjun gossins, voru þeir allir hljóðnaðir utan
gígurinn í hátindinum og gígur einn mikill á suðvesturöxl fjallsins.
Jarðfræðingar þeir, sem unnu að rannsóknum á Heklugosinu, nefndu
þessa gíga sín á milli Axlargíg og Toppgíg, og hafa þessi nöfn festst
við þá.
Um miðjan apríl óx gosið í Toppgíg, og næstu vikurnar voru
sprengingar í honum með að meðaltali 10—15 mínútna millibili.
Lítil öskumyndun var í gígnum þessar vikur, en hann þeytti daglega
upp hraunslettum og bombum, en púaði þó út dálitlu af ösku þess
í milli. Hinn 30. apríl tókst okkur Pálma Hannessyni að komast upp
á háhrygginn milli Axlargígs og Toppgígs. Þann dag var Toppgígur