Náttúrufræðingurinn - 1957, Side 9
SUÐRÆN SKÓGARTRÉ
55
húsgögn o. fl. Olíur eru unnar úr viðnum og margir söngvarar nota
„Eucalyptus pillur“ við hæsi. Gúmítré, sem víða er ræktað í stof-
um, telst til drekatrjánna og getur orðið stórvaxið i heimkynnum
sínum. „Indverskt mahogny" eða vindlakassatré er áður nefnt.
„Madeira-mahogny" er viður Tamarindetrésins. Sést, að æði margt
er kallað mahogny.
Rauðviður (Redwood) er viður risafuru Sequoia sempervir-
ens), sem vex í strandhéruðum Kaliforníu og verður um 100 m á
hæð. Kjarnaviðurinn er rauðleitur, léttur og mjög endingargóður,
mikið notaður í byggingar, m. a. í þiljur og húsgögn vegna fagurs
litar. — Indverskur rauðviður fæst af Kondariltrénu, sem vex þar
eystra. Hann er fallegur harðviður, notaður í dýr húsgögn, þiljur
o. fl. Hin fögru rauðu fræ trésins eru notuð sem kvenskraut. Brún-
spónninn, sem hér var áður notaður í hrífutinda, er viður Per-
mambuk-trésins (Caesalpina echinata) frá Suður-Ameríku. Er viður-
inn stundum nefndur rauðtré og Brasilíutré. Viðurinn er notaður
í skip, rennismíði og unnið úr honum litarefni.
Rósatré er samnefni ýmissa viðartegunda, sem bera rósrauð-
an lit, eða ilmar líkt og rósir. Vesturindía rósaviður hefur rósailm
og er notaður til smíða og í reykelsi. „Polynesisk rósatré" frá Suður-
hafseyjum og Afríku gefa líka rauðan, ilmandi við. Brasilíurósa-
viður er Ijósrauður, harður og þungur, en ilmlaus. Notaður í dýr
húsgögn. Dóminiskur rósaviður er brúnn og rósailmandi. Til er
líka Afríku-rósaviður. Hann er harður og þungur, rauðleitur og
stundum með bláleitum æðum.
Ebenviður (Ibenholt) er frægur viður, dýrmætur mjög og
eftir honum sótst þegar í fornöld. í austrænum kvenlýsingum er
fögrum konum talið þ.'.ð til gildis, að hár þeirra var svart sem eben-
viður. Forn-Egyptar sóttu ebenvið til Núbíu handa Faraóunum.
Þegar Persakonungur lagði undir sig Egyptaland, krafðist hann
þess, að Svertingjarnir í Núbíu færðu sér 200 ebenviðarboli annað
hvort ár. Forn-Grikkir rita um svartan ebenvið frá Afríku og ljósari
tegund frá Indlandi. Á miðöldum fluttist indverskur ebenviður til
Evrópu. Nú kemur hann einkum frá Afríku og Ceylon. Hvernig er
svo þessi frægi viður? Hann er þungur og harður, svartur eða svart-
brúnn, stundum með ljósari æðum eða flekkjum. Ebenviður þykir
mjög fagur, einkum hinn svarti. Ebenviður eða ibenholt er viður
nokkurra skyldra hitabeltistrjáa af ebenviðarætt (Diospyros) og ber