Náttúrufræðingurinn - 1957, Page 17
FRÁ JÖKULSÁRLÓNI Á BREIÐAMERKURSANDI
63
1. mynd. Kort danska Herforingjaráðsins af nokkrum hluta Breiðamerkursands,
gert eftir mælingum 1903.
ugri. En hinum vestri veitti betur að grafa sig niður, og er nú svo
komið, að þar rennur öll áin. Nú hefur Jökulsá grafið farveg sinn
að endilöngu niður að sjávarmáli, og síðustu árin hefur greinilega
gætt sjávarfalla allt upp í lón. Jökulsárlón er að breytast úr stöðu-
vatni í sjávarlón, en Jökulsá úr á í ós milli lóns og sjávar, þar sem
sjór streymir út eða inn eftir sjávarföllum. í fransk-íslenzka leið-
angrinum á Vatnajökul vorið 1951 varð fyrst vart saltbragðs af
vatninu í Jökulsárlóni, en ekki hef ég þó séð þessa getið í skýrslum
leiðangursmanna. Þess var að vænta, að sjávarseltunnar yrði þarna
fyrst vart að vetrar- eða vorlagi, þegar minnst leysingarvatn rennur
úr jöklinum. Vera má, að enn verði lónið því sem næst ósalt í sum-