Náttúrufræðingurinn - 1974, Blaðsíða 25
N ÁTTÚ RU FRÆÐ INGURINN
147
um nyrzta hluta þessarar hrauntungu. Verður nánar greint frá
þessu svæði síðar.
Nokkurn spöl norðaustur af Hagafelli verður gígaröðin öllu
fyrirferðarmeiri. Rísa þar háir gígir og nefnist Sundhnúkur sá
þeirra, er hæst ber. Frá þessari gígaþyrpingu hefur meginhraun-
flóð það, er til suðurs rann, komið. Það hefur fallið eftir dalnum,
sem verður milli Vatnsheiðar, sem er dyngja, og Hagafells. Það
hefur fyllt dalinn lilíða milli og fallið beint í sjó fram og myndar
þar um 2 km langan og rúmlega 1 km breiðan tanga, Þórkötlu-
staðanes, en vestan undir honum er vík sú, er Grindavík lieitir og
Iiefur frá fyrstu tíð verið ein rnesta verstöð þessa lands. Tilveru
sína á víkin hrauninu að þakka, því að án þess væru þar engin
hafnarskilyrði. Svo vikið sé að nafninu Sundhnúkur, liefur ísleifur
Jónsson, verkfræðingur, bent mér á, að nafnið muni vera komið
af því, að hnúkurinn hafi verið notaður sem leiðarmerki fyrir sigl-
ingu inn sundið inn á höfnina í Grindavík. Nokkru norðan við
Sundhnúk verður skarð í gígaröðina á ný, en norðar tekur hún sig
upp aftur og heldur eftir jrað beinu striki að heita má austur að
Stóra Skógfelli. Þessi kafli gígaraðariunar er annar sá mesti hvað
hraunrennsli snertir. Er ljóst, að hraunrennsli hefur að rnestu verið
bundið við ákveðna kafla gígaraðarinnar, og hefur hún því naum-
ast verið virk öll nerna rétt í byrjun gossins og sennilega um mjög
stuttan tíma. Virðist þetta eiga almennt við um sprungugos (Jóns-
son 1970).
Frá þessum kafla gígaraðarinnar — kannski væri réttara að kalla
það gígaraðir — hafa hraunstraumar fallið til norðurs og austurs,
auk þess sem þaðan liafa hraun runnið niður í áðurnefndan dal
milli Hagafells og Vatnsheiðar saman við hraunin úr Sundhnúka-
gígunum. Mikill hraunstraumur hefur fallið til norðurs frá þess-
um gígum, runnið vestur með Svartsengisfelli að norðan, og þekur
allstórt svæði vestur af því, langleiðina norður að Eldvörpum. Þar
hverfur það undir Illahraun, sem því er yngra. Hraunin úr Eld-
vörpum, Illahraun og hraun úr stórum nafnlausum(?) gíg suð-
vestur af Þórðarfelli eru samtímamyndun, en ekki verða hér rakt-
ar sannanir fyrir því. Þessi hraunstraumur hefur fyllt skarðið milli
Svartsengisfells og Stóra Skógfells. Virðist hraunið j:>ar mjög Jrykkt,
enda er sýnilegt, að hver straumurinn hefur Jtar hlaðizt ofan á