Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1974, Síða 54

Náttúrufræðingurinn - 1974, Síða 54
176 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN skjálfta árið 1789 seig landið á milli Almannagjár og Hrafnagjár um eina alin (63 cm) eftir frásögn Sveins Pálssonar, sem kom þang- að þremur árum eftir jarðskjálftann (Thoroddsen, 1925). Þetta sig var mælt í Almannagjá og Hrafnagjá, en sennilegt er, að landsigið hafi verið öllu meira en það, sem sjá mátti á einni sprungu hvoru megin sigsins. Ef allt sig Þingvalla hefur átt sér stað í jarðskjálft- um, þá hefur þurft 50 til 100 jarðskjálfta, svipaða þeim sem kom árið 1789, eða að jafnaði einn jarðskjálfta á hverjum 100 til 200 árum síðastliðin 9000 ár. Sögulegar heimildir benda ekki til, að miklir jarðskjálftar hali verið tíðir á Þingvöllum síðan á landnáms- öld. Sá möguleiki er fyrir hendi, að Þingvellir hali sigið með um Jiað bil jöfnum hraða þau 9000 ár, sem gert er ráð fyrir, að liðin séu, síðan hraunið rann. Þá hefur landið svignað niður þangað til berg- spennan varð svo mikil, að misgengi varð á meginsprungum austan og vestan sigdalsins. Jarðskjálftar hljóta að haía orðið samtímis misgengi á sprungunum. Eftir jarðskjálftann er bergspennan minni, en áframhaldandi sig byggir upp spennu á nýjan leik og eftir viss- an tíma, sem sennilega skiptir hundruðum ára, má aftur búast við jarðskjálfta og misgengi á sprungum beggja megin sigdalsins. Sumarið 1966 hóf ég mælingar á Þingvöllum til að ákvarða, hvort þar væri stöðugt landsig og, hve hratt landið sigi. Einnig áttu mæl- ingarnar að sýna, hvort misgengi yrði á sprungum svæðisins án þess að jarðskjálfta yrði vart, svo og að sýna nákvæmlega hve mikið mis- gengi yrði í jarðskjálftum. Nú hafa þessar mælingar staðið í nokkur ár og verða helztu niðurstöður þeirra birtar hér á eftir. Mœlingarnar Sumarið 1966 voru sett niður 42 fastamerki meðfram þjóðveg- inum við norðanvert Þingvallavatn. Þrjú vestustu merkin voru vestan Almannagjár og fjögur austustu merkin voru austan Hrafna- gjár. Merkin voru sett með 50 metra millibili næst gjánum, en 1. mynd. Kort af Þingvöllum og nágrenni. Sýndir eru fastapunktar liallamæl- ingalfnunnar og númer nokkurra þeirra svo og lielztu gjár svæðisins. (Að mestu eftir 1:50000 korti útgefnu af Army Map Service, Washington). Map of the Thingvellir area showing the bench marks of the levelling profile and the principal recent faults.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.