Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1974, Qupperneq 61

Náttúrufræðingurinn - 1974, Qupperneq 61
N ÁTTÚ RUFRÆÐINGURINN 183 Sigurður Þórarinsson: Skeljungssteinn Nokkuð innan við Silfrastaði í Skagafirði og skammt frá norður- sporði vestari brúarinnar yfir Norðurá er grasi gróinn höfði. Á þess- um höfða sést frá þjóðveginum steinn allmikill. Þetta er blágrýtis- steinn, nokkuð veðraður, líkur pýramída í lögun frá þjóðveginum að sjá og um 1 m á hæð. Sé steinninn athugaður nánar sést, að í gegnum hann ofanverðan liggja tvær beinar pípulaga rásir sam- hliða og með um 25 cm millibili. Er neðri rásin 78 cm löng, 8 cm í þvermál í nyrðri endann en 5 í þann syðri. Efri rásin er næstum 1 m á lengd, og þvermál hennar til endanna 10 og 7 cm. Steinn þessi lieitir Skeljungssteinn, og hefur hann vegna ofan- nefndra rása orðið tilefni kunnrar þjóðsögu, sem hér verður ei rakin, en lesendum vísað á Árbók Ferðafélags íslands 1946, eftir Hallgrím Jónasson, sem endursegir þessa sögu Jrar á bls. 35—36. Þess skal aðeins getið, að Skeljungur var afturganga sauðamanns á Silfrastöðum, óvættur mikil, og segir þjóðsagan, að sonur bónd- ans á Silfrastöðum hafi með spjóti sínu borað tvö göt í stóran stein, er þá stóð á Grímshól skammt innan við Silfrastaði, og bundið drauginn við þann stein með ólum ristum úr nautshúð, en draugn- um tókst að draga steininn þangað, sem hann stendur nú, og heitir hann síðan Skeljungssteinn. En livernig eru þá rásirnar gegnum steininn til orðnar? Þær liafa sína sögu að segja, ekki ómerkari en þjóðsöguna, þótt góð sé. Þessar rásir eru för eftir granna trjáboli eða greinar, sem glóandi, þunnfljótandi hraun hefur storknað utan um. Þess var getið af undirrituðum í greinarkorni í Náttúrufræðingnum 1966, að för eftir trjáboli væri að finna í gljúfri Kotár (áin raunar nefnd af vangá Valagilsá í greininni, en leiðrétt síðar), skammt inn af brúnni og beggja megin árinnar. Eru þessi trjáför öll í sarna hraunlaginu, þéttu blágrýtislagi, sem liggur á allþykku setlagi. Er þarna um stóreflistré að ræða, þau stærstu a. m. k. hálfan metra í þvermál, og virðist auðsætt, að um barrtré sé að ræða, sakir Jress hve bein-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.