Náttúrufræðingurinn - 1975, Blaðsíða 65
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
55
Fagradalshamrar. Undir móberginu í austanverðum hömrunum
er dökkt standberg. I því er allmikil útfelling, en mest gætir hennar
í móberginu í Flúðanefi (Skorbeinsflúðum). Getur þar orðið hvítt
salthrúður á blettum, ef lengi hefur verið þurrveður. Þarna er berg-
ið alldökkt og hart, en hefur nokkra tilhneigingu til að klofna í
flögur (slíkt berg var í Mýrdal nefnt flísaberg af eldri mönnum). Ef
til vill stafar þessi klofnunartilhneiging af því, að allmikill raki er á
köflum í berginu, og springur því frekar í frostum.
í Víkurhömrum er víða allmikið af saltútfellingu, sérstaklega í
Miðhömrunum og á kafla í Víkurkletti að austanverðu.
Vestan í Reynisfjalli í Hnjúknum skarnmt norðan við bæinn
Reyni er mikið saltmagn á bletti í bjargveggnum. Annars staðar
hef ég ekki séð saltútfellingu í fjallinu.
í Dyrhólaey er allmikið af saltútfellingu bæði vestan og norðan
í háeynni, en þarna er nokkuð erfitt að rannsaka bergið þar sem
allmikið sædrif getur gert yfir eyna í suðvestan roki, og getur
það orðið alllíkt saltútfellingunni, ef ekki rignir, áður en til þornar.
í austurlrlíð Péturseyjar miðsvæðis er allmikil saltútfelling úr
móbergi milli basaltinnskotslaga. Er það eini staðurinn, sem ég
hef fundið útfellinguna í slíkri bergmyndun. Lítið ber á útfelling-
unni í bjargveggnum sunnan í eynni.
Vestanmegin í Klifandagili er á köflum allmikið af útfellingu
en þar sem ég var þarna í mjög óheppilegu veðri, gat ég ekki kannað
útfellinguna sem skyldi, en mér virtist vera allverulegt af henni
á nokkrum stöðum.
Hér hef cg getið þeirra svæða, sem ég hef kannað í sambandi
við saltútfellinguna í móbergi í Mýrdal, ef til vill finnst hún
víðar ef vel er leitað. Ekki er það einkaréttur Mýrdalsfjalla að eiga
„natríumklórid” útfellinguna því í Drangshlíðarfjalli og Hrútafelli,
sérstaklega norðvestan í því er mjög mikil útfelling á pörtum. Vel
getur verið að hún finnist víðar í fjöllum Eyjafjalla, því ekki hef
ég kannað það til hlítar.
Ef til vill er það mikilvægasta atriðið hjá mörgum að fá svör
við þeirri spurningu, hvenær og hvernig lútarsaltið hafi blandast
gjóskunni, sem móbergið er myndað úr. Ef ég ætti að svara því yrði
tiltækasta skýringin mín þessi:
Kenning mín er einfaldlega sú, að móbergsfjöllin, sem útfellingin
finnst í, séu upphaflega mynduð við neðansjávargos og saltið bland-