Náttúrufræðingurinn - 1975, Blaðsíða 18
12
NÁTTÚRU FRÆÐIN GURINN
hafa á innan við 20 m dýpi. Tiltölulega litlu hefur verið safnað
af hveldýrum á grunnsævi, og má því búast við, að öllu fleiri teg-
undir en þessar 52 sé þar að finna. Því er ekki óhugsandi, að not-
endur lykilsins muni komast yfir tegundir, sem ekki eru í honum.
Vegna þess hef ég tekið inn í hann allnánar lýsingar á ílestunr teg-
undum, svo að hægt verði að ákvarða þær af meira öryggi, heldur
en ef lykilatriðin hefðu staðið ein. Einnig ætti það að hjálpa þeim,
sem kynnu að hafa undir höndum tegundir, sem ekki eru í lyklin-
um.
Við gerð lykilsins var einkum stuðzt við Kramp 1935, og lýsing-
ar á ýmsum íshafstegundum eru fengnar frá Kramp 1926. Einnig
hef ég stuðzt nokkuð við eigin athuganir.
Áður en lagt er út í notkun lykilsins, er ráðlegt að kynna sér vel
kaflana um byggingu hveldýra og gerðir sambýla. Þar er að finna
skýringar á þeim heitum, sem koma fyrir í lyklinum. Er því orða-
listi með skýringum óþarfur. Þá verður að hafa í huga, að eintök,
sem menn hafa undir höndum, geta verið mjög gölluð, og gerir
það byrjendum gjarnan erl'itt fyrir. Sjórekin eintök hafa t. d. oft
misst lokin af sepaþekjunum. Eins er algengt að finna aðeins hluta
af sambýli, t. d. grein af fjaðurgreindu sambýli. Til þess að ákvarða
hveldýr er oftast nauðsynlegt að nota smásjá, og þarf oft rneir en
fimmtíu falda stækkun.
1 Sepa- og hnappþekjur vantar (Gyrnnoblastea) ............. 2
— Með sepa- og hnappþekjur (Calyptoblasiea) ............... 8
2 Armar mjög stuttir, dreifðir um allan sepann. Hnappar á
sepanum, milli armanna................................... 3
— Armar langir, þráðlaga .................................. 4
3 Serkur stofns og sepastilka myndar þétta hringi. Sambýli
allt að 4 cm hátt, óreglulega greint. Hnappar (allt að 10)
kúlulaga, sitja á neðri hluta sepans ....................
.................................... Coryne pusilla Gaertner
— Serkur sléttur eða með nokkrum dreifðum hringjum. Sam-
býli allt að 3 cm, lítt greint. Sepinn ljósrauður. langegg-
laga, 12—16 armar, og hnappar (allt að 3) perulaga á stutt-
um stilkum, sitja á milli neðstu armanna.................
...................................... Coryne sarsii (Lovén)