Náttúrufræðingurinn - 1975, Blaðsíða 109
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURI NN
99
Október: Sveinbjörn Björnsson, eðlisfræðingur: Um stóra skjálfta og smáa.
Nóvember: Sigurður Richter, dýrafræðingur: Um sníkjudýr sauðfjár.
Samkomurnar sóttu alls 540 manns eða 90 að meðaltali. Flestir voru fundar-
menn 140, en fæstir 27.
Fræðsluferðir
Farnar voru fjórar fræðsluferðir, jirjár eins dags ferðir um Suðvesturland og
ein þriggja daga ferð. Þátttakendur í jiessum ferðum voru alls 226.
Sunnudaginn 7. júli var farið í Herdísarvík og Stakkavík til grasaskoðunar
undir handleiðslu Eyjrórs Einarssonar. Þátttakendur voru alls um 40. Veður
var ágætt. Skoðaður var gróður í fjörum, á sjávarfitjum, í hraunum og upp um
ldíðar og kletta. Á jressum slóðum eru víða lalleg burknastóð í hraunum og
skriðum og fundust alls 8 burknategundir þennan dag.
Sunnudaginn 21. júlí var farin fjöruferð suður með sjó undir stjórn Agnars
Ingólfssonar. Þátttakendur voru 5. Þennan dag var einmuna gott veður og
óvenju mikii fjara. Fyrst voru skoðaðar fjörur og tjarnir við Straum, en Jjar
eru m. a. pollar Jjar sem bæði eru vorflugulirfur og marflær. Síðan var farið
að Látrum við Hvassahraun og fjörur þar grandskoðaðar. Þar eru margar
tjarnir með margvislegu seltustigi, og þar með fjölbreytilegu dýralífi og gróður-
fari, en fjörur eru afar fjölbreyttar.
Föstudaginn 16. ágúst var lagt af stað í jniggja daga alhliða náttúruskoðun-
arferð í Mókollsdal í Strandasýslu og viðar. Farið var frá Reykjavík kl. 9 ár-
degis og ekið sem leið liggur veslur. Við Hreðavatn var stansað og snætt, en
síðan ekið norður Holtavörðuheiði. Þar var stansað og gengið niður að Holta-
vörðuvatni og hugað að plöntum og himbrimum. Næst var stansað við Bæ í
Hrútafirði og skoðuð nákuðungslögin í Bæjarnesi. Þaðan var ekið vestur yfir
Laxárdalsheiði og sem leið liggur í Bjarkarlund í Geiradalshreppi, A.-Barð.,
en jrar var slegið tjöldum og gist i tvær nætur. Daginn eftir, laugardaginn 17.
ágúst, var ekið norður yfir Tröllatunguheiði. Stansað var í Húsavíkurkleif, en
þar liggur vegurinn í gegnum setlög frá tertíer. Á þessum stað er mikið af
tertíer plöntuleifum í leirsteini og einnig er mikið af förum eftir trjáboli neðst
í lirauni ofan á setlögunum. Úr Húsavlkurkleif var ekið inn í Kollafjörð og inn
á Þrúðardal og gengið þaðan yfir í Mókollsdal, en þar var sest að í Hrútagili
við steingervingaleit, og var úr nógu að moða af plöntuleifum frá tertíer. Síðan
gengu flestir niður Mókollsdal og Þrúðardal í bflana, en nokkrir fóru með
Kristjáni Sæmundssyni að skoða postulínsleir á Bleikjuholti. Sunnudaginn 18.
ágúst voru tjöldin tekin up|>. Fram að hádegi var farið um tertíer eldstöðvar í
Vaðalfjöllum og Borgarnesi vestan Króksfjarðar. Á jiessu svæði er einnig lor-
vitnilegt gróðurlar og fjölbreytt fuglalít, einkum í Borgarnesi, en jjar sáust m.
a. himbrimar og örn. Stansað var við Gullborg og Rauðukúlur í Hnappadals-
sýslu. Því næst var stansað við Kaldá og skoðuð þar sjávarsetlög frá síðjökul-
tíma í barði rétt við Jrjóðveginn. Loks var komið við í Brynjudalsvogi við
Hvalfjörð og safnað geislasteinum og holufyllingum og skoðaður einn fegursti