Náttúrufræðingurinn - 1975, Blaðsíða 35
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
29
Meðaltal af þessum greiningum gefur 1880 ±85 C14 ár og er það
raunar sami aldur og Kristján Sæmundsson (1962) finnur fyrir Nesja-
hraun í Grafningi.
Landbrot í Skaftafellssýslu
Nokkuð hafa verið skiptar skoðanir um aldur þess hrauns, sem
byggðin í Landbroti stendur á. Þó má augljóst vera hverjum þeim
er til þekkir, að það hlýtur að vera gamalt. Má marka það af því
einu að 10 m þykkt jarðvegslag er sums staðar ofan á því. Enginn
efi telst á því, að hraunið sé komið úr Eldgjá. Norðan við túnið í
Ytri-Dalbæ er 10 m hátt rof þar sem kvísl úr Skaftá — Rásin, —
hefur grafið sér farveg meðfram austasta tanga Skaftáreldahrauns
og grafið sig alveg niður á hraunið. Er það fróðlegt jarðvegssnið,
sem raunar þyrfti að rannsaka betur en ennþá er orðið.
Ur þessu rofi liggja nú fyrir fjórar nýjar aldursákvarðanir (Jóns-
son 1972), og verður hér gerð nánari grein fyrir þeim.
Um 30 cm ofan við yfirborð hraunsins er þétt lag af gróðurleif-
um, sem eru svo saman pressaðar, að þær minna á kol. Líkist þetta
einna helst samanþjöppuðum laufbotni í skóglendi. Augljóst er
að þessar gróðurleifar hljóta að vera allmiklu yngri en hraunið.
Aldursákvarðanir frá þessum stað líta í heild þannig út:
Helmingunartími 5570 ár
Dalbær I (U-2415) 4810 + 80 C14 ár
II (U-2416) 3800 + 80 C14 ár
III (U-2417) 3520 + 70 C14 ár
IV (U-2528) 1245 ± 60 C14 ár
Helmingunartími 5730 ár
4950 + 80 C14 ár
3910 + 80 C14 ár
3620 + 80 C14 ár
1910 + 60 C14 ár
Dalbær I eru áðurnefndar gróðurleifar um 30 cm ofan við hraun-
ið. Dalbær II eru birkistofnar, sem ligga í ljósu öskulagi réttum
96 cm ofan við yfirborð hraunsins. Virðist ekki vafi á, að þar sé um
aðræða H-4 í öskulagatímabili Sigurðar Þórarinssonar (1971). Askan
er fínkornótt og telur Jens Tómasson (pers. upplýsingar), sem að
beiðni minni hefur gert smásjárathuganir á sýni úr þessu lagi, að
örugglega sé um Hekluösku að ræða, en Jens hefur allra manna
mest rannsakað bergfræði Hekluöskulaganna.
Ofan við þetta öskulag kemur 43—44 cm þykkt moldarlag með
skógarleifum og 6 svörtum öskulögum, en þá kemur annað ljóst