Náttúrufræðingurinn - 1977, Qupperneq 56
1. mynd. Kort, er sýnir staði þá, sem nefndir eru í greininni. — Map shotuing locali-
ties uniler discussion. 1. Lónafjörffur í Jökulfjörðum. 2. Breiffavík. 3. Laxá, Fróðár-
heiffi. 4. Drápuhlíðarfjall. 5. Breiðadalsheiffi. 6. Gerpir.
breyting K:i 9 í A:!i) fer eftir föstum
reglum. Er því möguleg skekkja vegna
notkunar tveggja sýnishluta, annars
vegar í K^O-greiningu og liins vegar
í Ar-greiningu í massagreini, ekki fyr-
ir hendi. í öðru lagi eru hér einungis
mæld hlutföll, en vitneskja um lieild-
armagn er ekki nauðsynleg og í þriðja
lagi t. d. við stighitun eru einungis
mæld argonhlutföll frá sömu svæð-
um innan kristalla eða bergbrota í
sýnunum.
Með þessari aðferð er stundum
hægt að greina á milli seinni tíma at-
burða í jarðsögu svæðisins, t. d. að
ummyndun hafi átt sér stað einu
sinni eða oftar eftir myndun bergsins
samfara yngri eldvirkni eða jarðhita-
virkni. Þetta gildir þó aðeins um þau
tilfelli þar sem jarðhitavirkni eða
ummyndun hefur aðeins náð að reka
hluta argonsins út. Ef um algera um-
myndun er að ræða, má telja allt
argon horfið og aldurinn sem fæst
við ákvörðunina sýnir þá aldur þess-
arar seinni tíma ummyndunar, en
ekki réttan aldur bergsins.
Helstu annmarkar þessarar aðferðar
hafa vcrið í aldursákvörðunum mjög
ungs bergs, þ.e. bergs sem er yngra en
1—2 milljónir ára, en endurbætur að-
ferðarinnar, sem unnið er að í Cam-
bridge, Englantli, gera aldursákvarð-
anir mjög ungs bergs mögulegar.
50