Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1978, Side 28

Náttúrufræðingurinn - 1978, Side 28
Gísli Már Gíslason: íslenskar vatnabjöllur Inngangur Þessi grein er samin til að bæta að nokkru úr þeirri þörf sem er á að- gengilegum greiningarlyklum yfir ís- lensk vatnadýr. Efni í greinina var safnað á árunum 1974—1977. Allar lýsingar og myndir í greininni eru byggðar á íslenskum eintökum, nema 8. mynd. Islenskar vatnabjöllur ganga undir nöfnunum brunnklukkur og vatna- klukkur. Þessar bjöllur (Coleoptera) dveljast nær allt lífsskeið sitt í vatni. Egg og lirfur (vatnskettir) ala aldur sinn í vatni, en púpustigið er á landi. Fullorðnu dýrin lifa að mestu í vatni, en fljúga þó annað veifið. Hérlendis eru tvær ættir vatna- bjallna, vatnaklukkuættin (Halipli- dae) og brunnklukkuættin (Dytisci- dae). Ein tegund er af fyrrnefndu ætt- inni, en fjórar af hinni síðarnefndu. Vatnabjöllur þurfa loft til öndunar og koma upp á yfirborðið öðru hverju. Þær geyma loftbólu undir skjaldvængjunum, sem þær nýta smám saman til öndunar, en vatna- klukkan Haliplus fulvus getur einnig geymt útöndunarloftið við koxaplöt- una (plata sem hylur stofnlið aftasta l'ótapars), og verður súrefnisstreymi inn í loftbóluna úr vatninu og koltví- sýringur streymir út í vatnið. Þetta streymi er aukið með hröðum lireyf- ingum afturfótanna. Þannig getur bjallan dvalist lengri tíma en ella í kafi, en sarnt er nauðsynlegt fyrir hana að koma upp á yfirborðið öðru hverju. Vatnskettirnir anda einnig að sér súrefni úr andrúmsloftinu. Tvö öndunarop eru á aftasta lið þeirra. Þó geta vatnskettir lækjarklukkunnar að öllum líkindum notað sér súrefni vatnsins, þar sem þeir koma sjaldan eða aldrei upp á yfirborðið. Greinilegasta aðlögun vatnabjallna til sunds er straumlínulögun þeirra. Á þetta aðallega við brunnklukku- ættina. Afturfætur þeirra eru einnig góðir sundfætur, flatir með löng hár og spora. Vatnaklukkur eru ekki eins straumlínulaga og fætur þeirra eru ekki flatir, en hafa þó háraröð. Flokkun og lifnaðarhœttir Við samningu þessa kafla er að rnestu stuðst við grein eftir Larsson og Gígja (1959) og eigin athuganir a útbreiðslu vatnabjallna. Lirfustig vatnabjallna eru þrjú. Fullvaxnir vatnskettir (þriðja stig) skríða á land og mynda púpuhylki og púpa sig. Bjallan skríður síðan úr púpunni og niður í vatnið. Náttúrufræðingurinn, 47 (3—4), 1977 154

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.