Náttúrufræðingurinn - 1978, Síða 78
á samfélagsfræði plantna má að nokkru
leyti telja undanfara vistfræðirannsókna
hér á landi, en einnig eru þær nauðsyn-
legur grundvöllur að úttekt og mati á
gróðurbúskap landsins og verðmætum og
afkastagettu gróðursantfélaga, svo og kort-
lagningu þeirra.
Sturla Friðriksson.
Landverndarfundur um úrgangsefni
Á fulltrúaráðsfundi Landverndar, er
haldinn var í Munaðarnesi dagana 26. og
27. nóvember s.l., voru flutt fjögur fram-
söguerindi urn nýtingu og meðferð lif-
rccnna úrgangsefna. Björn Dagbjartsson,
forstöðumaður Rannsóknastofnunar fisk-
iðnaðarins, ræddi um nýtingu fiskúrgangs.
Sigmundur Guðbjarnason prófessor tal-
aði um meðferð og vinnslu á úrgangi frá
sláturhúsum. Jón Erlendsson verkfræð-
ingur ræddi um nýtingu lífrænna efna í
sorpi og endurnýtingu á sorpi almennt
og sagði í því sambandi frá athugun, sem
gerð hefur verið á vegum Reykjavíkur-
borgar. Agnar Ingólfsson prófessor talaði
um óæskileg áhrif lífrænna úrgangsefna
á lífríki landsins.
Öll voru þessi erindi hin fróðlegustu
og staðfestu þá gífurlegu verðmætasóun,
sem viðgengst hér á landi, og einnig
óheillavænleg álirif á lífríkið, s. s. of-
fjölgun einstakra dýrategunda.
Þeim, sem unnið ltafa að umhverfis-
vernd hér á landi, er það löngu ljóst, að
úrgangsefni, sem koma frá fiskveiðum og
fiskvinnslustöðvum, sláturhúsum og sorp-
haugum eiga stóran þátt í þeim um-
hverfisspjöllum og ntengun, sem setja
miður glæsilegan svip á það umhverfi,
sem við höfum valið okkur til búsetu.
Með nýtingu þessata úrgangsefna og
eyðingu á þeirn efnum, sem ekki telst ger-
legt að nýta, yrði stórum áfanga náð í
umhverfisvernd og raunar er ekki ltægt
að vænta verulegra úrbóta, fyrr en þessi
mál eru komin í viðunandi liorf.
í sambandi við þessi erindi gerði fund-
urinn svofellda samþykkt:
„Aðalfundur Landverndar 1977 vekur
athygli landsmanna á því, að gífurleg
verðmæti fara forgörðum í þeim lífrænu
efnum, sent fleygt er sem úrgangi við
vinnslu fisks og sláturafurða og sem sorpi.
Jafnframt er ljóst að efni þessi valda
ýmiss konar röskun og mengun í fslensku
lífríki. Fundurinn skorar á stjórnvöld,
ríkisvald og sveitarfélög, svo og þau fram-
leiðslufyrirtæki, sem þetta vandamál varð-
ar, að taka það föstum tökum og kanna
allar leiðir til að nýta úrgangsefni tii
framleiðslu. Bendir fundurinn á að við
lausn slíkra mála ber ekki eingöngu að
taka tillit til arðsemisútreikninga, heldur
fremur til skynsamlegrar og nauðsynlegr-
ar landnýtingar."
Fundurinn gerði einnig samþykkt um
að nú þegar yrði hafist handa um undir-
búning að næstu 5 ára áætlun um land-
græðslu og gróðurvernd og nýtingu lands
og að ekki verði gert hlé á sókn til þeirra
markmiða, sem Alþingi setti íslendingum
með landgræðsluáætlun 1974.
Haukur Hafstað.
204