Náttúrufræðingurinn - 1978, Blaðsíða 62
4. mynd. Mýrdalsjökidl (Byggt á landmælingum Steinþórs SigurSssonar frá 1943,
Rist 1967). — Mýrdalsjökull (Based on geodetic surveys by Steinthor Sigurdsson in
1943, Rist 1967).
yfir eldstöðina. Svo £1 jótt sveipar
Katla sig ísfeldi á ný eftir gos, að við
verðum að skyggnast undir hann með
íssjánni.
Hugsum okkur að ísnurn hafi verið
flett af Mýrdalsjökli (5. rnynd). Við
erum enn stödd á Háubungu, nú í
um 1100 m hæð yfir sjó. Bungurnar
fyrrnefndu rísa upp: Háabunga,
Goðabunga, Austmannsbunga í
norðri og Kötlukollar. Djúpir og
langir dalir skriðjöklanna blasa við.
Þar sem áður var íssléttan er nú marg-
breytilegra landslag. Við veitum fyrst
athygli hrygg, sem liggur frá Háu-
bungu vestanverðri í stefnu norðaust-
ur. Hann er nokkuð flatur að ofan,
tveggja til þriggja km breiður og
hallar niður af honum á þrjá vegu.
Því má einnig lýsa honum sem nesi.
Til suðausturs hallar niður í dal
Höfðabrekkujökuls. Norðausturendi
nessins er suðaustan við Austmanns-
bungu. Þar hallar niður í djúpan dal,
sem skilur hrygginn frá Austmanns-
bungu. Milli nesendans og Aust-
mannsbungu stefnir dalurinn á Eld-
gjá, en sveigir í hásuður vestan við
hrygginn og endar inni í miðjum
jökli. Árið 1918 kom Kötlugos upp
188