Náttúrufræðingurinn - 1978, Side 49
á H3 í jarðvegi og svo miklu yngri
öskulög með kunnum aldri.
í 5 sniðum mældum á Eyjunni og
2 á austurbrúnum Ásbyrgis er þykkt
moldarlagsins milli H3 annars vegar
og hlauplags oi'an á hins vegar 9—18
cm og þokkalegt samræmi i öllum
sniðum. Á kafla sunnarlega á Eyju
(sbr. og snið II) er ljósgrátt öskulag,
sem gihl ástæða er til að ætla að sé
H 1104 (finnst hér oft dreift). Um 2—
4 cm undir því er 3—6 cm þykkt viðar-
kolalag. I þessum sömu börðum er
7—9 cnr þykkt moldarlag milli H 1104
og svarta öskulagsins „a“ frá því unj
1477 (sbr. Þórarinsson, 1958 o. v.). Ef
ljósgráa askan er H 1104, svarar því
þetta moldarlag til um 373 ára jarð-
vegsþykknunar (eftir landnám). Þá er
Ijóst, að 9—18 cm jarðvegsþykkt milli
H3 og hlauplags (fyrir landnám) er
öldungis óeðlileg þykknun, ef jretta
stórhlaup hefði orðið aðeins 400 ár-
um eftir að H3-askan féll, þótt reikn-
að sé með talsverðu foki. 1000 ár væru
nær sanni. Ekki skal fjölyrt um þetta
að sinni, en ég hygg að vart séu liðin
2000 ár, síðan þetta ægilega hlaup fór
niður Jökulsárdal.
Um stcerð síðasta hlaups
Haukur Tómasson hefur með að-
stoð Laufeyjar Hannesdóttur og Sig-
mundar Freysteinssonar verkfræðings
reiknað út rennsli þessa Iilaups í For-
vöðurn. I.aufey fær út yfir 1 milljón
m3/rennsli/sek. (Manningjafna) og
farveg grafinn í nútímaformi. Hauk-
ur telur þó að Manningjafna gefi ol
há gildi á bolni, sem er að grafast.
Sigmundur fær að sínu leyti með ýms-
um aðferðum rennsli, sem nemur 400
—500 þús. m3/sek. og farveg í nú-
tínraformi (Tómasson, 1973). Ekki er
víst að forsendur þessa reiknings séu
alls kostar réttar, vegna þess að eitt
hlaup er gert úr tveimur til þremur
risavöxnum hlaupum.
Leyfilegt er þó að velta vöngum
yfir stærð síðasta hlaups. Stærð Ás-
byrgis er mikil og grófst það upp í
Jjessa stærð í síðasta hlaupi. Ásbyrgi
er ekki heppilegur staður til Jæss að
áætla rennslið. Heppilegri staður er í
Kvíafarvegi, um 2 krn sunnan Ás-
byrgisbotns og skammt norðan Ás-
kvía. Breidd síðustu hlauprásar er þar
rúml. 900 m, rnesta dýpi upp undir
15 m, halli um 1:100. Lauslega áætl-
að Jjversnið farvegs er um 7000 m2.
Meðalstraumhraði um 16 m/sek. er
sennilegur samkv. Manninglíkingu.
Rennsli í hámarki verður Jjví vart
undir 110 Jrús. m3/sek. Hér er mjög
lauslega haldið á Manninglíkingu og
tölur ekki byggðar á vönduðunt mæl-
ingum. Hygg þó að þetta gefi ekki
mjög villandi hugmynd um hámarks-
rennslið um Kvíafarveg og Ásbyrgi.
En önnur flóðkvísl fór samtímis
um Landsgljúfur. Vafalaust var sú
kvísl síst minni, en ])ar er erfitt um
rennslisáætlun, Jjar sem gljúfrið var
að grafast og stærð ]>ess fyrir hlaupið
ókunn. Barmafull gljúfrin nú skammt
sunnan Vestaralands rúma á 3. hundr-
að ]>ús. m3 rennsli/sek., miðað við
holunarstraumhraðann 20 m/sek. og
Manningjöfnu. Straumhraði hefur
verið gífurlegur í þeim J)rengsl mn og
gröftur óðfluga. Eftir verksummerkj-
um að dærna kemur minna rennsli
en 100 þús. m3/sek. vart til greina.
Samkvæmt mjög grófri ágiskun Jjyrfti
]>ví a. m. k. 200 ]>ús. m3 rennsli/sek.
til Jress að samsvara þeim stórvirkj-
175