Náttúrufræðingurinn - 1992, Síða 5
1. mynd. Náttfari er mjög
fáséður á Islandi. Hann
er á ferli að nóttu til, eins
og heitið gefur til kynna,
en leynist í gróðri á dag-
inn. Nightjar ('Caprim-
ulgus europaeusj.
(Ljósm. photo H. Lass-
witz/OKAPIA).
og mjóir, stélið langt og fætur veik-
burða.
Aðeins 2 tegundir náttfara verpa í
Evrópu en 7 í N-Ameríku (Peterson
1947, 1961). Tegundir sem verpa
norðan heittempraðra svæða eru al-
gjörir farfuglar og leita þeir suður í
hitabeltið á veturna. Tvær tegundir
náttfara hafa fundist á Islandi, önnur
evrópsk en hin amerísk.
Náttfari (Caprimulgus europaeusj
Náttfari (1. mynd) verpur í sunnan-
verðri Skandinavíu, norður að 64°N í
Finnlandi, á Bretlandseyjum og allt
suður til N-Afríku. Auk þess verpur
hann austur um miðbik Asíu, allt til
Mongólíu og Kína. Tegundinni hefur
verið skipt í 6 undirtegundir. I N-Evr-
ópu er undirtegundin europaeus en
meridionalis í S-Evrópu.
Náttfarar hverfa allir frá Evrópu á
haustin. Vetrarstöðvar eru í Afríku,
um sunnanverða Sahara og allt til S-
Afríku. Fartími á haustin liefst þegar í
seinni hluta júlí, en þá fara einkum
ungfuglar úr fyrsta varpi. Flestir yfir-
gefa varpstöðvar á tímabilinu ágúst til
byrjun október. Þeir hafa náð suður
fyrir miðbaug í október til nóvember.
A vorin hefst farflug í mars en flestir
koma til Evrópu í apríl og maí.
Á íslandi hefur náttfari sést tvisvar.
1. Nýjabær undir Eyjafjöllum, Rang, um 25.
október 1933 (imm RM4042). Bjarni Sæ-
mundsson (1933).
2. Steinadalur í Suðursveit. A-Skaft, 17. júní
1977 (cf ad RM6595). Hálfdán Björnsson,
Kristinn H. Skarphéðinsson, Skarphéðinn
Pórisson.
Fyrri fuglinn var ungfugl, sem
fannst aðframkominn síðla hausts, en
sá síðari fullorðinn karlfugl, í fegursta
skrúða á þjóðhátíðardeginum.
Húmfari (Chordeiles minorj
Húmfari er algengastur náttfarateg-
unda í N-Ameríku. Hann er algengur
um gjörvöll Bandaríkin, í suðurhluta
Kanada, frá Labrador og allt vestur til
Alaska. Suðurmörk útbreiðslusvæðis-
ins eru í Mið-Ameríku. Húmfari er
breytileg tegund og hefur níu undir-
tegundum verið lýst. Hann er farfugl
sem dvelst í S-Ameríku á veturna, allt
suður um miðja Argentínu. Fartími á
haustin hefst seint í júlí og stendur
83