Náttúrufræðingurinn - 1992, Qupperneq 17
Sigurður H. Magnússon og Borgþór Magnússon
Áhrif víðis á landnám birkis
á skóglausu svæði
INNGANGUR
Það er alkunna að í gróðurfélögum
hafa plöntur oft mikil áhrif á vöxt og
viðgang granna sinna. Þessi áhrif geta
verið jákvæð eða neikvæð. Þau hafa
m.a. verið rakin til skjóls (Carlsson
1990), samkeppni (t.d. Harper 1977,
Whittaker 1975) og efnalosunar (all-
elopathy) (Whittaker 1975). Við rann-
sóknir á samspili plantna hefur athygli
einkum beinst að samkeppni, en mjög
lítið hefur verið fjallað um annars
konar samspil (Carlsson 1990). Bent
hefur verið á, að þar sem lífsskilyrði
eru erfið vegna eðlisþátta umhverfis-
ins megi búast við jákvæðu samspili
milli plantna, t.d. þar sem plöntur
nema land á gróðursnauðum svæðum
(Callaghan og Emanuelsson 1985).
Hér á landi eru víðáttumikil svæði
gróðursnauð og plöntur eiga þar oft í
miklum erfiðleikum með að nema
land og komast á legg, t.d. á svæðum
sem orðið hafa örfoka. Fremur lítið er
vitað um hvernig samspili einstaklinga
og tegunda er háttað við slíkar að-
stæður. Að undanförnu hefur land-
nám birkis (Betula pubescens)* tals-
* Tegundaheiti íslenskra háplantna miðast við
Plöntuhandbók Harðar Kristinssonar (1986);
latnesk tegundaheiti mosa við lista yfir íslenskar
mosategundir (Bergþór Jóhannsson 1983) og
tegundaheiti sveppa við Sveppakver Helga
Hallgrímssonar (1979). Heiti á erlendum trjá-
tegundum miðast við grein Óla Vals Hanssonar
(1989).
vert verið rannsakað (Sigurður H.
Magnússon 1989, Sigurður H. Magn-
ússon og Borgþór Magnússon 1990,
Asa L. Aradóttir 1991), en áhugi hef-
ur aukist á að nota birki í land-
græðslu. Gerðar hafa verið tilraunir
með birkisáningar við mismunandi
aðstæður til þess að kanna áhrif svarð-
ar og jarðvegsgerðar á fræspírun og
afföll ungplantna (Sigurður H. Magn-
ússon og Borgþór Magnússon 1990,
Ása L. Aradóttir 1991). Niðurstöður
þessara rannsókna hafa m.a. sýnt að
sá gróður sem fyrir er hefur afgerandi
áhrif á landnám birkis. Þykkt svarð-
lagsins hefur t.d. mikil áhrif á spírun
og afföll ungplantna. Tiltölulega mikil
afföll verða á plöntunum fyrsta vetur-
inn, einkum vegna frostlyftingar í
jarðvegi. Afföllin eru einnig háð stærð
fræplantna. Því stærri sem þær eru á
fyrsta hausti þeim mun nreiri eru lífs-
líkur þeirra. Ljóst er að þeir þættir
sern áhrif hafa á vöxt fræplantna birk-
is fyrsta sumarið geta haft rnjög rnikið
að segja um hvort plönturnar komast
á legg eða ekki.
I framhaldi af sáningartilraunum á
birki sem hófust 1987 á vegum Rann-
sóknastofnunar landbúnaðarins (Sig-
urður H. Magnússon og Borgþór
Magnússon 1990) voru árið 1988 hafn-
ar nýjar tilraunir á fjórum stöðunr í
landi Gunnarsholts á Rangárvöllum.
Tilgangur þéirra var m.a. að afla upp-
lýsinga um áhrif fræhúðunar og
Náttúrufræðingurinn 61 (2), bls. 95-108, 1992.
95