Fréttablaðið - 20.05.2009, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 20.05.2009, Qupperneq 16
16 20. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR UMRÆÐAN Óli Gneisti Sóleyjarson skrifar um trúfrelsi Á nýlegri þingsetningu var hugrekki fjögurra þingmanna það sem vakti mesta athygli. Þeir neituðu opinberlega að taka þátt í hefð sem tengir saman Alþingi og ríkiskirkjuna. Í raun hafa alltaf verið til þingmenn sem ekki hafa tekið þátt í messu- haldinu en þeir létu bara engan vita af því. Nú var það skref stigið að almenningur fékk að vita af þessu. Viðbrögðin við þessu voru margs konar. Sumir voru ánægðir með þingmennina en aðrir ósáttir. Einn fyrrverandi ráðherra súmmer- aði ágætlega upp skoðanir margra þegar hann sagði að það hefði verið allt í lagi þegar þingmenn tóku ekki þátt í messunni en það væri óhæfa að láta alla vita af því. Útvarps- maður á Bylgjunni tók annan pól í hæðina og sagði að þingmennirn- ir hefðu átt að „drullast í kirkju og vera prúðir“. Hvorugur þessara manna virð- ist hafa djúpan skilning á trúfrelsi. Annar vill bókstaflega skylda þing- menn til að mæta í kirkju en hinn vill að menn feli skoðanir sínar. Þannig eiga þingmenn sem ekki fara í kirkju að taka sér hlutverk hommans í skápnum eða heiðingjans sem fær að blóta á laun. Ef við byggjum við trúf- relsi væri yfirhöfuð engin messa við þingsetningu enda væri þá búið að skilja á milli ríkis og kirkju. Þriðja viðhorfið sem ég rakst á frá trúmanni var þvert á hin. Hans skoðun var sú að hér væri verið að vanvirða kirkjuna með því að ætlast til að þingmenn tækju þar þátt í trúarathöfn þótt þeir væru jafnvel ótrúaðir með öllu. Í þessu samhengi er ágætt að rifja upp viðbrögð ýmissa trúmanna frá árinu 2007 þegar prestur í Fríkirkj- unni leyfði húmanistabrúðkaup þar. Margir þeirra voru stórhneykslað- ir á því atferli. Ég hlýt að spyrja: Hvers vegna eru þessir sömu prest- ar ekki jafn hneykslaðir á því að trú- laust fólk sé næstum skyldað til að taka þátt í trúarathöfn í kirkju? Er það ekki jafn mikil eða meiri van- virðing við kirkjuna? Eða er bara allt í lagi að kirkjan sé bústaður innantómra ritúala sem fólk tekur eingöngu þátt í formsins vegna? Höfundur er meistaranemi í þjóðfræði. UMRÆÐAN Svana Helen Björns- dóttir skrifar um ný- sköpun Í stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi kennir margra grasa. Víst er að ekki vantar viljann að styðja við nýsköpun og sprotafyrirtæki en margir vilja fá eitthvað fyrir sinn snúð og stuðn- ingur er oftar en ekki skilyrtur á þann veg að þeir sem þyrftu fá ekki notið. Tækniþróunarsjóður Rannís er einn fárra samkeppnissjóða á Íslandi þar sem fyrirtæki geta sótt um verkefnastyrki, allt að 10 milljónum króna á ári að hámarki í 3 ár. En það eru ekki aðeins fyr- irtæki sem sækja um styrki í Tækniþróunarsjóð, því þangað sækja margar opinberar stofnan- ir og keppa við sprotafyrirtækin. Að jafnaði hefur verið hægt að styrkja um 30% verkefna sem sótt hafa um styrk til sjóðsins og þess er krafist að styrkþegar leggi að lágmarki sömu fjárhæð til verk- efnisins á móti. Fjármagn rík- isins til sjóðsins hefur að mestu verið óbreytt í krónutölu undan- farin ár, þrátt fyrir verð- bólgu. Styrkir hafa held- ur ekki vaxið sem nemur verðbólgu. Í haust tókst þáverandi iðnaðarráð- herra, Össuri Skarp- héðinssyni, að standa vörð um fjárveitingar til Tækniþróunarsjóðs og var sjóðurinn meira að segja aukinn svolítið og er nú 570 milljónir á ári. Þessi fjárhæð segir þó ekki alla söguna því fjármunir sjóðsins eru bundnir með framvirkum samn- ingum um verkefni til 2ja eða 3ja ára. Í kjölfar efnahagshrunsins hefur umsóknum fjölgað gríðar- lega. Í febrúar 2009 var umsókna- met slegið er yfir 160 umsóknir bárust, sem er meira en þreföldun frá fyrri árum. Aðeins er til fé til að styrkja 10-12% umsókna. Þau álitlegu verkefni sem ekki hljóta styrk eru ónýtt tækifæri til verðmætasköpunar. Þetta eru slæm skilaboð til frumkvöðla sem ekki hafa að öðru að hverfa. Í þessari erfiðu stöðu höfum við tvo kosti; að auka fjárframlög til Tækniþróunarsjóðs eða setja aukna fjármuni í Atvinnuleysis- tryggingasjóð. Munurinn á þessu tvennu er eftirfarandi: 300 milljónir í Tækniþróunarsjóð ■ Kalla á 300 aðrar milljónir í mótframlag. ■ 70-80% fara í laun. ■ Um 90 störf skapast. ■ Verðmæti verða til. ■ Tæpar 120 milljónir koma til baka sem tekjuskattur. ■ Skattar og gjöld af annarri veltu eru um 10% og nema um 15 milljónum ■ Nettóútgjöld fyrir ríki eru 165 milljónir fyrir 90 störf frum- kvöðla í nýsköpun. 165 milljónir í Atvinnuleysistryggingasjóð ■ Jafngilda meðalbótum fyrir 80 manns í eitt ár. ■ Engin störf skapast. ■ Engin verðmæti skapast. ■ Engar tekjur skapast. ■ Starfsfærni tapast. ■ Verðmæt viðskiptatækifæri daga uppi. Við Íslendingar vitum hve nauð- synlegt það er að bjarga verðmæt- um. Eftir að aflinn er ísaður þarf að hafa hraðar hendur til að hann spill- ist ekki. Nú vantar um 300 milljón- ir upp á að hægt sé að styðja um 30% umsókna í Tækniþróunarsjóð á árinu 2009. Höfundur er forstjóri Stika. UMRÆÐAN Þorfinnur Guðnason skrifar um viðbrögð við kvikmynd- inni Draumalandinu Jón Kristjánsson og Skúli Thor-oddsen skrifa sína greinina hvor í Fréttablaðinu og eru hálf miður sín yfir heimildarmynd- inni Draumalandið sem við Andri Snær Magnason leikstýrðum. Báðir setja fingur á loft og greina lesendum frá því að hér sé ekki um heimildarmynd að ræða held- ur hreina og klára áróðursmynd. Þessar fullyrðingar eru eins og ómur úr fjarska. Þetta er ekki ljóð! Á tuttugustu öld rifust menn um það hvað væri list og ekki list. Jónas frá Hriflu hélt sýningu á klessumálverkum til að sýna fólki hvað væri alls ekki list. Í dag eru þessi málverk dýrmætur menn- ingararfur. Í þá daga tókust menn líka á um hvort hægt væri að tala um órímuð ljóð sem ljóð, sumir kölluðu þau atómljóð til aðgrein- ingar frá sönnum ljóðum. Öll þessi hugsun um hvað sé list og ekki list er bæði upphafin og sumir segja löngu úrelt fyrirbæri. Belgíski súrrealistinn Magritte afgreiddi þennan ágreining fyrir fullt og allt þegar hann gerði málverk af pípu og skrifaði undir myndina eftirfarandi fullyrðingu: Þetta er ekki pípa! Þetta er ekki heimildarmynd! Í huga Skúla og Jóns virðist orðið heimildarmynd þýða eitthvað annað og meira. Eitthvað sem er rétt og upphafið. Þeir finna sig knúna til að skrifa grein til að segja vitibornu fólki frá því að þetta sé alls ekki heim- ildarmynd – að fólk megi ekki láta glepjast – og þeir hanga á þessu orði eins og hundar á roði. Orðið heimildarmynd og skiln- ingur þeirra á því virðist flækjast fyrir þeim. Þeir álíta að heimildarmynd sé heilagur og ósnertanleg- ur sannleikur, kynlaus og án náttúru. Það sem má kalla heimildarmynd er mynd þar sem öll sjónarmið koma fram í hlutfallslega réttum skömmt- um – og sem slík á hún hvorki að hafa skoðun né rödd. Heimildar- mynd skal vera í góðu jafnvægi og hlutverk hennar er að upplýsa og fræða áhorfendur. Þannig mynd er einungis hægt að kalla heim- ildarmynd. Rangt! Slík mynd er ekki til. Bara það að ákveða hvað fer á gólf klipparans og og hvað fer í myndina er dæmi um skoðun höfunda. Þetta eru ekki blaðagreinar! Með sömu rökum má alveg eins segja að blaðagreinar þeirra séu ekki blaðagreinar, heldur áróð- urspistlar; enda vanda þeir okkur ekki kveðjurnar og benda á ýmis- legt sem þeim finnst að betur mætti koma fram. Um leið sýna þeir okkur inn í þeirra eigin hug- arheim, þeirra skoðun – sem hlýt- ur að teljast réttlát og hlutlaus. Skúli bóndi Skúli stillir okkur upp við vegg og spyr: Er ég óvinur náttúrunn- ar? Ég sem vil nýta náttúruna og auðlindir hennar skynsamlega? En hvað er skynsamlegt? Hann segir það ekki, en hann segist líta á landið okkar eins og bóndi líti á jörð sína. Honum þykir vænt um landið og ber hag þess fyrir brjósti – okkur öllum til heilla. Rétt fyrir utan túnfót- inn heyrir hann gutlið í Gunnuhver og í fjarska sér hann til Brennisteins- fjalla, þar sér bóndinn tækifæri fyrir nýrækt á jörð sinni. Skúli talar eins og það sé hans einkamál að skrapa saman heilli Kárahnjúkavirkjun af suðvesturhorninu til að þjóna Century í Helguvík af því að hann er heimamaður. Skúlaskeið Því næst stígur Skúli upp á kassa og messar yfir okkur í litríkum andstæðum og háði: Það er ekk- ert að marka þessa mynd af því að framleiðandi myndarinnar er auð- ugur maður sem virðist haldinn tilvistarvanda. Andri Snær hafi vissulega haft það gott norður á Sléttu hjá afa sínum og ömmu í æsku en á slíkri afturábakhugsun og fortíðarfíkn geti fólkið í land- inu alls ekki lifað. Svo skammar hann þá báða fyrir að gera grín að fátæku fólki fyrir austan – að slíkt hljóti að koma úr hörðustu átt. Skúli útskýrir ekki fyrir okkur hvenær við gerum gys að fátæku fólki. Kannski þegar við vörpum ljósi á æðið sem greip fólk fyrir austan þegar framkvæmdirnar hófust? Æði sem er löngu þekkt úr fréttum; hamingjusamt fólk birt- ist á sjónvarpsskjánum og segir okkur að þetta sé ein af merkari stundum í Íslandsögunni og menn draga Alcoa-fána að húni. Ég get fullyrt að í myndinni birtast engir fátækir Íslendingar – þvert á móti er þetta ein ríkasta þjóð veraldar, íbúar í lýðræðisríki, sem ganga af göflunum þegar erlendur for- stjóri lendir á einkaþotu sinni. Það er óþægilegt að horfa á – en það þýðir ekki að dæma höfunda myndarinnar. Á hægu tölti Skúli leggur á skeið í grein sinni en Jón Kristjánsson fer hægagang- inn. Hann talar föðurlega til okkar, klappar okkur meira að segja á kollinn. Jújú, ansi hreint góð mynd en fólk má ekki láta slá ryki í augun á sér. Þetta er áróðursmynd – ekki heimildarmynd – og þess vegna ekkert að marka hana. Gott fólk! Munið það þegar þið gangið út úr bíóhúsinu. Muna: Áróður! Hann segir okkur að vissulega sé eftirsjá eftir því mikla landi sem nú sé á botni Hálslóns en það var enginn valkostur, það var ann- aðhvort að hrökkva eða stökkva. Og því studdi hann heilshugar framkvæmdirnar, fólki sínu til hagsældar. Báðir stilla þeir dæm- inu upp eins og það séu aðeins tveir möguleikar í stöðunni: ann- aðhvort förum við í framkvæmd- ir og byggjum álver eða við okkur blasir fátækt. En hvar var þjóðin stödd fyrir þessar allar stóriðju- framkvæmdir? Var hún fátæk? Var hér mikið atvinnuleysi? Hvaða aðra möguleika hafði hún? Hvar erum við stödd núna? Jón talar um jákvæð staðbund- in áhrif af þessum risafram- kvæmdum þegar staðreyndin er sú að hún er hluti af atburðarás sem leiddi til hrun hins íslenska hagkerfis. Meira að segja IMF og Jónas Haralz tala um það: Ruðn- ingsáhrif, styrking krónunn- ar, hækkaðir stýrivextir og loks jöklabréf. Fjárgötur Hvorki Skúli né Jón vilja horfa á stóru myndina og spyrja alvöru spurninga: Hverju hefur þetta skilað okkur? Hvers vegna þurf- um við að eyða allri orkunni okkar í álver og stóriðju, strax? Hvernig standa orkufyrirtækin? Af hverju orkuleynd? Eitt gígavatt í ylrækt, svo dæmi sé tekið, skilar okkur 14 störfum en 0,14 störfum í álver- um – hvað segir það okkur? Hvaða orðræða og klisjur eru notaðar þegar framkvæmdir eru uppi á borðinu? Hagvöxtur! Atvinna! Börnin heim! Fagurt mannlíf! Hækkað fasteignaverð! Skúli og Jón kjósa að hanga í smáatriðum og kasta fram frös- um og klisjum þegar kemur að stóru myndinni. Þeir feta fjár- götur og forðast þjóðveginn: Val- gerður vinnur af heilindum. – Því erum við sammála. Við álítum hana velmeinandi. Jón talar um laxeldi í Jöklu sem jákvæð áhrif, sem er álíka mikil náttúra og að búa til rennandi Reynisvatn. Bæj- arstjórinn Guðmundur Bjarnason er mætur maður og það er illa vegið að honum. Við teljum bæjar- stjórann fyrrverandi velmeinandi og ágætan mann – en John Perk- ins var samt forspár um hvernig fyrirtæki eins og Alcoa olnboga sig inn í lítil samfélög. Hvar vinn- ur Guðmund Bjarnason og við hvað? Tölum ekki um það? En vandinn við síðustu ár var að hver og einn átti að hugsa um sjálfan sig, skara eld að eigin köku. Hugmyndafræðin sagði að ef allir hugsuðu um það að græða myndu allir græða. Það reyndist ekki rétt. Allir töpuðu. Allir. Höfundur er kvikmyndaleikstjóri. ÞORFINNUR GUÐNASON Þetta er ekki pípa – þetta er skapandi heimildarmynd Hvorki Skúli né Jón vilja horfa á stóru myndina og spyrja alvöru spurninga: Hverju hefur þetta skilað okkur? Hvers vegna þurfum við að eyða allri orkunni okkar í álver og stóriðju, strax? SVANA HELEN BJÖRNSDÓTTIR Nýsköpun eða atvinnuleysisbætur? ÓLI GNEISTI SÓLEYJARSON Að vanvirða kirkjur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.