Fréttablaðið - 20.05.2009, Qupperneq 31

Fréttablaðið - 20.05.2009, Qupperneq 31
 1. tölublað maí 2009 07 Á síðustu 10 árum hafa orðið til og leitað sér meðferðar hjá SÁÁ 2.559 nýir kannabisfíklar. 2.041 þeirra voru 25 ára eða yngri og 1.267 voru 19 ára eða yngri. Á hverju ári koma því yfir hundrað nýir kannabisfíklar á Vog sem eru 19 ára eða yngri. Í umræðunni um kannabisefnin gleymist allt of oft að þeir sem nota kannabisefni á Íslandi eru unglingar og ungt fólk. Reynsla SÁÁ af umræðunni um til að mynda lögleiðingu er að slík umræða eykur kannabisneysluna. Hún beinlínis ógnar velferð unglinga á Íslandi. Kannabisfíkn er grafalvarlegt mál sem ræða þarf umbúðalaust. Það þýðir ekkert fyrir ábyrga aðila að beita fyrir sig afneitun, átakafælni eða háttvísi þegar rætt er um hugsanlega lögleiðingu á kannabis. Staðreyndirnar tala sínu máli. Embættismenn og háskólamenn þurfa að vega og meta þær staðreyndir sem liggja fyrir um vandan sem stafar af kannabisfíkn á Íslandi. Árið 1998 komu, svo dæmi sé tekið, um 100 nýir kannabisfíklar sem voru 19 ára eða yngri á sjúkrahúsið Vog. Við komuna voru 42 krakkar líka háðir örvandi vímuefnum. 22 ungmenni hafa ekki komið til SÁÁ síðan. Hinir, næstum 80 krakkar, hafa komið aftur og margir þeirra sem ekki voru háðir örvandi vímuefnum við fyrstu komu hafa ánetjast þeim og er nú vitað að minnsta kosti 70 krakkar af þessum upprunalegu hundrað urðu örvandi vímuefnafíklar á síðustu 10 árum. Kannabisfíkn er alvarlegur og þrálátur heilasjúkdómur og af þessum rúmlega hundrað unglingum sem komu á Vog í fyrsta sinni fyrir rúmum 10 árum og voru yngri en 20 ára hafa 39 sprautað vímuefnum í æð og 29 hafa gert það reglulega í einhvern tíma. 14 þessara krakka hafa fengið lifrarbólgu C. KANNABISFÍKN er mesti hamingjubani og heilsuspillir hina ungu: Yfir hundrað nýjir ungir kannabisfíklar á ári Kókaín- og amfetamínfaraldur AMFETAMÍN kom hingað til lands fyrir rúmum 25 árum. Í kjölfarið bjuggust fagaðilar við að kókaínið myndi hefja innreið sína. Enda kókaínfaraldur staðreynd vestan hafs. KÓKAÍNIÐ kom á endanum, næstum tuttugu árum síðar og náði hámarki í fyrra. Kókaínið kom til Reykjavíkur á árunum 1998-2000 og aldrei hefur verið meira af því en árið 2008. Þótt kannabisfíkn hafi aukist og valdið verulegum breytingum á sjúklingahópnum á Vogi er þó tilkoma og aukning amfetamínfíknar mun alvarlegri. Faraldur ólöglegrar amfetamínneyslu sem svipaði til amfetamínfíknar í Svíþjóð hófst á Íslandi 1983. Síðan þá hefur örvandi vímuefnaneysla vaxið stöðugt þegar á heildina er litið og tók stórt stökk um leið og E-pillan kom til Íslands árið 1996. Örvandi vímuefnafíkn hefur hlut- fallslega aukist úr 10 % í 30% á síðustu 20 árum og síðustu árin verið aðalvandi fólks á aldrinum 20- 30 ára. Um 70 % þeirra greinist með örvandi vímuefnafíkn af einhverju tagi. Það sem einkennir neysluvenjur fíklanna er að efnin er notuð í stórum skömmtum, í túrum og þau eru sogin í nef eða þeim sprautað í æð. Um 30% örvandi vímuefnafíkla fá lifrarbólgu C og rúmlega helmingur sprautar efnunum í æð. Á árinu 1998 kom kókaín fyrst að einhverju gagni til Íslands og blandaðist og bættist við þann örvandi vímuefnavanda sem fyrir var. Kókaínneyslan hefur aldrei verið meiri en á árinu 2008. ÖRVANDI VÍMUEFNAFÍKLUM FJÖLGAR Örvandi vímuefnafíklum hefur fjölgað á Vogi. Nú er svo komið að allt upp undir fjörtíu prósent þeirra sem koma á Vog eru háðir amfetamíni, kókaíni eða öðrum örvandi vímuefnum. 45% 40% 25% 30% 35% 20% 15% 5% 10% 0% UM 30% ÖRVANDI VÍMUEFNA- FÍKLA FÁ LIFRARBÓLGU C OG RÚMLEGA HELMINGUR SPRAUTAR EFNUNUM Í ÆÐ.“ KÓKAÍN Í GÓÐÆRINU Í fyrra náði kókaín hæstu hæðum. Ungir íslenskir karlmenn sitja í fangelsum á Íslandi og víða um heim vegna tilrauna til smygls. Sífellt fleiri koma á Vog, háðir kókaíni, en sjúkrahúsið hefur ártugareynslu af amfetamínfaraldri sem hófst fyrir næstum 30 árum. GÍFURLEG FJÖLGUN KÓKAÍNFÍKLA Eins og sést á grafinu margfaldaðist fjöldi kókaínfíkla um og í kringum aldamótin. Fjöldinn hefur náð hæstu hæðum og fíknin er alvarleg. 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 350 300 250 200 150 50 100 0 1984198619881990199219941996199820002002200420062008 AF HVERJU KAUPIR ÞÚ ÁLFINN? Frá því að ég man eftir mér hef ég keypt álfinn til styrktar SÁÁ, meira að segja löngu áður en ég sjálf ákvað að hætta að drekka. Ástæðan er afar einföld; það er gríðarlega nauðsynlegt að efla starfsemi á við SÁÁ, því sú starfsemi bjargar lífum. Þetta er stofnun sem ég þekki vel til og góða reynslu af og hún er of- boðslega mikilvæg í samfélaginu. Við Íslendingar getum verið stoltir af því að vera svona framar- lega á merinni þegar kemur að meðferðarúrlausnum, en víða erlendis komast ekki nema þeir ríkustu í meðferð. Svo eru álfarnir líka svo mikil krútt og smellpassa bæði ofan á tölvuskjáinn og á mælaborðið í bílnum. RAGNHEIÐUR M. KRISTJÓNSDÓTTIR, BLAÐAMAÐUR Ég tel að alkóhólismi sé bæði einn skæðasti og hættulegasti sjúkdómur sem herjar á okkur mannfólkið. Við á Íslandi erum svo heppin að hafa gott aðgengi að meðferð, það gott að við tökum það eiginlega sem sjálf- sagðan hlut. Ef einhverntíman hefur verið þörf fyrir stuðning almennings við það frábæra starf sem SÁÁ innir af höndum þá er það núna. Á tímum sem þessum stækka akkílesarhælar fólks og verða auðveldara skotmark fyrir Bakkus. Og þar sem þessi sjúk- dómur snertir beint eða óbeint flest öll heimili í landinu vil ég leggja mitt af mörkum til að gera það kleift að hér verði áfram öflugt meðferðar og eftirmeðfer- ðar starf. Þess vegna kaupi ég álfinn. SÓLVEIG EIRÍKSDÓTTIR MATARHÖNNUÐUR Fátt, ef nokkuð, er þurrkuðum fyllibyttum sem komnar eru fyrir vind í endalausri baráttunni við Bakkus mikilvægara en að rétta þeim sem enn eru týndir fárviðri fíknarinnar hjálparhönd. Þess vegna kaupi ég álf. Hverjum einasta alka á að renna blóðið til skyldunnar og gera slíkt hið sama. Við sem höfum þegið gistingu og hjálp á Vogi vitum hversu mikilvægt starf er unnið þar og í raun er kraftaverk hversu vel tekst til miðað við hversu naumt ríkið skammtar stofnunninni fé. Tóta Tyrfings munar því um hverja krónu og þess vegna verða ál- farnir að seljast eins og heitar lummur. Kaupiði því tvo álfa. Eða þrjá. ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON BLAÐAMAÐUR Þeim fjölgar ört kannabisfíklunum á Vogi og nú er svo komið að næstum 40% þeirra sem koma á Vog eru háð kannabis. Hlutfallið er nærri því að vera helmingi hærra þegar einungis er horft til krakka undir tvítugu. KANNABISFÍKLUM FJÖLGAR 800 500 600 700 400 300 100 200 0 1984 1986 1988 1990 1992 1994 1996 1998 2000 2002 2004 2006 2008
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.