Fréttablaðið - 20.05.2009, Side 35
1. tölublað maí 2009 11
BATI stendur fyrir svokölluðum 12 spora „speaker“-ráðstefnum í Von:
Gamli rótari Stones væntanlegur
Í fyrrahaust stóð líknarfélagið Bati
fyrir árlegri 12 spora „speaker“-
ráðstefnu í félagsheimili SÁÁ Von
í Efstaleiti. Viðtökurnar voru svo
góðar í fyrra að þegar mest
lét voru hátt í 400 manns í
húsinu. Það var setið á öllum
göngum, uppi á svölum og
stemningin rosaleg.
„Þetta var alveg frábært í
fyrra og verður vonandi aftur í
ár,“ segir Elías Guðmundsson,
formaður líknarfélagsins Bata. „Við
reynum að hafa þetta ókeypis og
vonum að það gangi aftur upp í ár.“
Ræðumennirnir, eða „speaker“-
arnir eins og þeir kallast, gista
bara á heimilum Elíasar
og félaga. Þannig að það
er ekkert verið að bruðla
heldur er félagið rekið af
mikilli hugsjón.
„Við áætlum að halda
ráðstefnuna í ár síðustu
helgina í september,“ segir
Elías og er ánægður með
aðstæður í Von. „Það er
frábær aðstaða
þarna og allt
til alls.“
Nú
þegar er
búið að bóka mjög vinsæla nunnu
sem kemur í haust og verið að ganga
frá fleiri ræðumönnum. Í fyrra sló
einmitt önnur nunna í gegn auk
Hollywood-leikarans Hectors sem
þótti alveg geggjaður.
„Flestir sem koma eru frá Los
Angeles. Það er svona mekka þessara
“speaker“-funda og við höfum verið
mjög heppin með fólk,“ segir Elías
en margir þessara ræðumanna hafa
leyft XA-radíó, FM 88,5, að útvarpa
ræðunum og er óhætt að mæla með
því fyrir áhugasama að hlusta nánar
á útvarpsstöðina.
Næsta ráðstefna er sem fyrr segir
síðustu helgina í september. En í
lok júní, byrjun júlí, er væntanlegur
til landsins Mickey nokkur Bush.
Hann sló í gegn á fyrstu „speaker“-
ráðstefnunni sem haldin var á
Íslandi og ræðum hans hefur verið
útvarpað á XA-radíó. Mickey ætlar
að halda „workshop“ hér á landi
sem verður nánar auglýst síðar. „Ég
heyrði að Mickey ætlaði að vera í
Englandi í sumar og hafði samband
við hann um að koma við hjá okkur.
Honum leist svona líka vel á það,“
segir Elías en Mickey þessi Bush er
gamall rótari hjá Rolling Stones og
ótrúlega skemmtilegur fýr.
HÓPURINN Á BAK VIÐ RÁÐSTEFNUNA Það er meira en að
segja það að koma saman ókeypis ráðstefnu. En með mikill samheldni og
góðu sjálfboðaliðastarfi er það hægt. Hér er hópurinn sem stóð á bak við
ráðstefnuna í fyrra.
ELÍAS GUÐMUNDSSON
Formaðurinn vonast
eftir jafngóðri
mætingu aftur í
haust.
Rannsóknir sýna auknar líkur á
að barn sem á foreldri sem leitað
hefur hjálpar á Vogi endi á Vogi
sömuleiðis.
SÁÁ hefur hafið forvarnarstarf
fyrir börn alkóhólista á aldrinum 8-18
ára og býður nú upp á sálfræðiviðtöl
fyrir þau.
„Í rúmt ár höfum við rekið
sálfræðiþjónustu SÁÁ,“ segir Lárus
Blöndal, sálfræðingur hjá SÁÁ, um
þjónustuna. „Við göngum út frá
því að börnin séu sjálf ekki byrjuð
í neyslu. En þessi þjónusta er góð
nýjung. Við byrjuðum smátt og
veittum viðtöl fyrir hádegi einn
dag í viku. Smám saman höfum við
aukið við þjónustuna og nú erum við
alla virka daga,“ heldur Lárus áfram
en alls hafa 150 börn komið í viðtöl.
Viðurkenningin mikilvæg
Þjónustan er auðsótt. Foreldrar,
forráðamenn eða stofnanir hafa
samband við móttökuritara í Von í
síma 530 7600 og fá tíma fyrir barnið.
Áætlað er að hvert barn fái sex til
átta einstaklingsviðtöl og er gjaldi
fyrir þetta stillt mjög í hóf, eða 1.000
krónur skiptið.
„Aðsóknin hefur farið langt
framúr björtustu vonum,“ segir Lárus
og segir að vegna þessa sé því miður
nokkurra vikna bið eftir viðtali nema
um bráðamál sé að ræða.
Hver eru helstu markmið
þjónustunnar?
„Þegar barn kemur í viðtal fær
það staðfestingu og
viðurkenningu á því
að það að vera barn
alkóhólista hefur
haft afleiðingar
fyrir barnið.
Að auki er
með viðtalinu
rofin ákveðin
einangrun þeirra
sem hafa búið við
þessar aðstæður,“ segir
Lárus en að hans mati
er viðurkenningin
mjög mikilvæg. „Þetta
skiptir máli bæði í nútíð
og framtíð. Við leggjum
áherslu á að hjálpa
barninu að skilja betur
stöðu sína og helstu
afleiðingar hennar.“
Þá er einnig
mikilvægt, að sögn Lárusar,
að barnið fái hjálp til að
skilja betur stöðu foreldra
sinna og þann vanda sem
þeir eiga við að stríða.
Það fylgir því mikið álag að vera BARN ALKÓHÓLISTA. Svo benda allar tölur til
þess að barn alkóhólista sé mun líklegra til að greinast með sjúkdóminn en aðrir.
Þess vegna hefur SÁÁ hrint af stað miklu forvarnarstarfi sem miðar að því að ná
til barna alka. Bæði til að veita þeim stuðning og aðstoð og viðurkenningu.
En líka sem forvörn. Því fróðari sem börnin eru því betur í stakk búin eru
þau til að taka afstöðu til eigin neyslu síðar meir.
Börn alkóhólista í aukinni áhættu
ÞEGAR BARN KEMUR Í VIÐTAL
FÆR ÞAÐ STAÐFESTINGU OG
VIÐURKENNINGU Á ÞVÍ AÐ ÞAÐ AÐ
VERA BARN ALKÓHÓLISTA HEFUR
HAFT AFLEIÐINGAR FYRIR BARNIÐ.“
ÞJÓNUSTA FYRIR BÖRNIN
Samkvæmt tölum frá Vogi eru
miklar líkur á að barn sem á
foreldri sem leitað hefur hjálpar
á Vogi endi á Vogi sömuleiðis.
LÁRUS BLÖNDAL
„Það ætlar sér enginn að verða
alkóhólisti. Og við þekkjum öll
hetjulega baráttu foreldra sem
kljást við þennan öfluga
fíknisjúkdóm.“