Fréttablaðið - 20.05.2009, Qupperneq 38
1. tölublað maí 200914
Þeir sem eru fæddir 1982 eru nokkuð
sérstakir í huga þeirra sem stunda
áfengis- og vímuefnameðferð og
forvarnir. Þetta er fólkið sem notaði
mest af vímuefnum í 10. bekk
grunnskóla ef marka má rannsóknir.
Allir sem á eftir komu urðu nánast
englar. Segja má að fólkið sem fætt
var 1982 hafi hrint af stað átakinu um
vímulaust Ísland og lagt grundvöllinn
að góðum árangri í forvörnum á
margan hátt. 5,4% piltanna komu
í meðferð á Vog áður en þeir urðu
tvítugir og eiga þeir piltar Íslandsmetið
enn.
„Ég hef ekki hugmynd um af hverju
þetta er svona,“ segir Ásmundur Einar
Davíðsson, nýkjörinn
þingmaður vinstri -
grænna, um árgang
1982, hans eigin árgang. Ási, eins og
hann er kallaður, er yngsti þingmaður
Íslendinga.
Georg í Sprengjuhöllinni
Bassaleikarinn í Sprengjuhöllinni,
Georg Kári Hilmarsson, er fæddur á
því alræmda herrans ári 1982. Hann
segir þetta hafa verið flæktan tíma.
Fyrir hann allavega.
„Það var auðvitað bjórstemning
í Brit-poppinu sem allir hlustuðu
á. Oasis-bræður í ölæði að slást við
Robbie Williams,“ segir Georg en
hann hætti að drekka fyrir tveimur
árum.
Jafnaldra hans, Elsa María Jakobs-
dóttir, dagskrárgerðarkona í Kastljósi,
ólst upp á Húsavík og fannst sinn
árgangur ekkert vera verri en aðrir
bekkir í skólanum þegar hún var
unglingur. „En þetta er auðvitað fyrsti
árgangurinn sem varð ekki sjálfráða 16
ára,“ segir hún. „Það er það eina sem
ég get séð sérstakt við þennan árgang.
Manni leið alltaf eins og maður mætti
ekki neitt. Kannski tengist þetta því.“
Kannabisfíkn algengust
Á þessu ári verður þetta fólk 27
ára og samkvæmt upplýsingum úr
gagnagrunninum á Vogi hafa 8,7%
strákanna og 4,5% stelpnanna verið
á Vogi.
Kannabisfíkn kemur flestum í
meðferð. 6,2% strákanna af árgangi
1982 hafa greinst kannabisfíklar við
komuna á Vog. „Það sem vekur athygli
og er mikið fagnaðarefni er hversu fáir
af árgangi 1982 hafa látist fyrir aldur
fram af þeim sem hafa verið á Vogi,“
segir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir
á Vogi, um árgerð 1982. -MT
ÁRGANGUR 1982 er mjög sérstakur hvað áfengi og
vímuefni varðar. Þetta er árgangurinn sem segja má
að hafi hrint af stað átakinu um fíkniefnalaust Ísland.
Þetta er líka fyrsti árgangurinn sem varð ekki sjálfráða
16 ára og krakkarnir af þessum árgangi skilja hvorki
upp né niður í af hverju þeir eru verstir.
13
150
100
50
0
14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25
FYRSTA KOMA
ALLAR KOMUR
Á HVAÐA ALDRI KOMU ÞEIR SEM ERU FÆDDIR 1982
ALLS HAFA 8,7% STRÁKANA OG
4,5% STELPNANNA VERIÐ Á VOGI.“
„Við erum búin að vera með þessa
þjónustu í heilt ár,“ segir Agnes
Amalía Kristjónsdóttir en hún kennir
konum leikfimi kl. 9 á mánudags-
og miðvikudagsmorgnum í Von,
Efstaleyti 7, og mun gera í sumar og
næsta haust.
„Allar konur sem sækja þónustu
SÁÁ, hvort sem er í Von eða á Vogi,
eru velkomnar. Og þetta er ókeypis,“
segir Agnes sem varð sjálf edrú fyrir
fimmtán árum og segir það hafa
hjálpað sér mjög að stunda heilbrigt
líferni og líkamsrækt.
„Hvað mig varðar þá hélst það
í hendur að rækta mig andlega og
líkamlega. Ef ég hreyfi mig þá líður
mér betur og ég sef betur og ég hef
meira sjálfstraust,“ heldur Agnes
áfram en hún reynir að hafa tímana
blandaða. Bæði dans og leikfimi og
STOTT PILATES.
Agnes hefur kennt dans og
leikfimi í yfir tuttugu ár. Í dag starfar
hún sem kennari hjá Dansrækt JSB
og er að auki söngkona. Hún er meðal
annars að syngja í nunnukórnum í
Söngvaseið þessi misserin. Henni
finnst svo mikilvægt að konur hætti
ekki að leika sér.
„Ég reyni fyrst og síðast að hafa
gaman í tímunum hjá okkur. Þeir eru
fyrir allar konur, á öllum aldri. Það
er eftir engu að bíða, bara drífa sig.
Sjálf reyni ég að vera dugleg við að
prófa nýja hluti. Ég fer út að hlaupa
og hef sótt hugleiðslunámskeið og
fór meira að segja á Bollywood-
námskeið um daginn. Það var mjög
gaman,“ segir Agnes.
Leikfimin er mikið sótt af konum
af göngudeild SÁÁ og er eins og
fyrr segir fyrir konur á öllum aldri.
Það þarf ekkert að boða komu sína,
bara mæta í þægilegum klæðnaði og
íþróttaskóm. Nánari upplýsingar er
hægt að fá hjá Agnesi á netfanginu
agnes@centrum.is.
Á mánudags- og miðvikudagsmorgnum kennir AGNES AMALÍA leikfimi í Von:
Ókeypis leikfimi fyrir konur
AGNES AMALÍA KRISTJÓNSDÓTTIR Í sumar og haust geta
konur sem sækja þjónustu SÁÁ mætt í leikfimi sér að kostnaðarlausu.
SÁÁ álfurinn
þarfnast þín
Dagana 20. – 24. maí er SÁÁ
álfurinn til sölu. Um árabil
hefur álfasalan eflt og stutt
við forvarna og unglingastarf
SÁÁ. Um leið og Íslendingar
eru hvattir til að kaupa álfinn
þá má benda áhugasömum á
heimasíðu SÁÁ vilji þeir taka
þátt í að selja álfinn. Slóðin er
www.saa.is en nú ríður á fólk
fylki sér á bakvið samtökin.
GEORG KÁRI HILMARSSON
TÓNLISTARMAÐUR
Hætti sjálfur að drekka fyrir tveimur
árum og man eftir Oasis bræðrum
og allri bjórdrykkjunni sem tengdist
Brit-poppinu.
ÁSMUNDUR EINAR
DAVÍÐSSON ÞINGMAÐUR
Hefur ekki minnstu hugmynd um af
hverju hans árgangur hefur vanið
komur sínar á Vog fremur öðrum
árgöngum.
ELSA MARÍA JAKOBSDÓTTIR
DAGSKRÁRGERÐARKONA
Fannst miklu frekar eins og hún til-
heyrði árganginum sem aldrei mátti
eitt eða neitt. Enda fyrsti árgang-
urinn sem varð ekki sjálfráða 16 ára.
Það var mikið áfall fyrir heilbrigðis- og menntakerfið
þegar frægar rannsóknir á vímuefnaneyslu þessa árgangar
voru birtar 1998 og á árunum í kring. Niðurstöðurnar
voru sláandi og segja má að árgangurinn hafi hrint af stað
miklu forvarnarátaki sem í raun stendur enn.
7%
45%
23%
22%
Kannabis Áfengi
Áfengi með öðru Amfetamín
KANNBISFÍKN ALGENGUST
Af þeim sem komið hafa á Vog, af
árgangi 1982, er algengasta fíknin
kannabisfíkn.