Fréttablaðið - 20.05.2009, Side 45

Fréttablaðið - 20.05.2009, Side 45
H A U S MARKAÐURINN 5MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2009 Ú T T E K T FRAMTÍÐARSÝN AIRBUS Líkast til fer þessi vél seint í loftið en hönnuðir Airbus nota hana sér til innblásturs þegar horft er til framtíðar. Á kynningu í Hamborg í síðustu viku sagði Acel Krein, sem er yfir rannsóknum og tækni hjá flugvélaframleiðandanum að horft væri til þriggja þátta við nýsköpun hjá félaginu: að vélarnar væru aðlaðandi fyrir farþega, umhverfisvænar og hagkvæmar í rekstri. MYND/AIRBUS Bágt ástand á alþjóðlegum fjármálamörk- uðum breytir engu um fyrirætlanir Ice- landair hvað varðar kaup á nýjum Boeing 787 „Dreamliner“ þotum, að sögn Sigþórs Einarssonar, aðstoðarforstjóra félagsins. Tafir hafa orðið á framleiðslu vélanna, þennig að tvær þotur sem afhenda átti Ice- landair á næsta ári verða að óbreyttu ekki afhentar fyrr en síðla árs 2012 og snemma árs 2013. Icelandair Group hefur pantað fimm þotur þessarar gerðar og á kauprétt á fleirum. „Við höfum fulla trú á þessari vél. En núna árar þannig að tafirnar hjá Boeing koma sér kannski ekkert illa fyrir þau félög sem áttu að fá fyrstu vélarnar hjá Boeing,“ segir Sigþór og kveðst gera ráð fyrir að þegar kemur að afhendingu nýju þotnanna til Icelandair verði markaðurinn orðinn mun eðlilegri. „Almennt finnum við bullandi áhuga í fluggeiranum á því að taka þessa vél, jafnvel þótt einhverjir hafi helst úr lestinni vegna vandamála dagsins í dag.“ Icelandair Group hafði gert samning um að leigja út fyrstu vélina sem afhenda átti og segir Sigþór töfina vissulega hafa sett ákveðið strik í þann reikning. „En við leysum bara úr því með Boeing og ekkert hik er á okkur með þessar vélar. Þetta eru hörkuvélar og eiga eftir að skila sam- stæðunni sínu með einhverjum hætti.“ Enn hefur hins vegar ekki verið ákveðið til hvaða verka nýju þotunum verður skipað eða hvað verð- ur gert við þær eftir afhendingu. „Það hefur ekk- ert þrýst á um ákvörðun í þeim efnum vegna taf- anna. Svo er líka aldrei að vita hver staðan verð- ur eftir tvö ár. Þá getur eins verið að okkur vanti einmitt svona vélar á einhverjar flugleiðir.“ Í flugiðnaði er enda gert ráð fyrir miklum vexti áfram og segir Sig- þór að Icelandair Group, líkt og önnur félög, reikni með að flugumferð haldi áfram að aukast. Fram kom á kynningu Airbus í Ham- borg í byrjun síðustu viku að gert væri ráð fyrir að flugumferð tvöfaldist á hverjum 15 árum. „Ég fór einmitt yfir þessar tölur um daginn. Hægt er að horfa á tvo þætti í þessum vexti, annars vegar skammtíma- og hins vegar langtímasýn. Til skemmri tíma eru mjög miklar sveiflur og við erum að fara í gegnum eina slíka núna, niður- sveiflu á eftir rosalegri uppsveiflu síðustu ár. En þegar horft er yfir lengri tíma sést að það er tvöföldun á hverjum fimmtán árum.“ Sigþór áréttar um leið að þótt vöxturinn virðist gífurlegur, þá þurfi ekki svo ýkja mikinn vöxt á ári hverju til að ná þessum tölum, líkast til fjögur til sex prósent á ári. „Og sá vöxtur er ekki fjarri lagi því í löndum þar landsframleiðsla á haus ekki mjög mikil núna þarf vöxtur ekki að aukast mikið til að ferðalög margfaldist. Og stór hluti heimsins er enn í þessari stöðu og nægir þar að nefna Indland og Kína.“ Sigþór segir Icelandair Group horfa vítt á mögu- leikana sem í boði eru hvað varðar flugvélakost í rekstrinum og loki þar ekki á neina möguleika. Samstæðan notar mestanpart Boeing vélar, en einnig Airbus í fraktflutningum hjá dótturfélag- inu Latcharter í Lettlandi. Þá segist hann tæpast telja að Evrópusambandsaðild myndi hafa áhrif á það hvar félagið kaupir vélar. „Ódýrar Airbus vélar yrðu alveg örugglega ekki hluti af aðildar- samningi,“ gantast hann með, en viðurkennir um leið að dregnar hafi verið upp myndir af því hverju það myndi breyta í rekstrinum að nota annan flug- vélakost. „Helst myndi það breyta fjármálaum- hverfinu, því viðskiptin yrðu þá að mestu í evrum en ekki dollurum eins og nú, en það myndi ekki beint hafa áhrif á viðskiptin. Við höfum hins vegar ekki horfið frá því að við teljum að fyrirtæki eins og okkar hafi töluverð tækifæri í viðskiptum með flugvélar sem hliðarbúgrein. Í þeim efnum höldum við opnum línum á alla staði.“ SIGÞÓR EINARSSON Tafirnar trufla ekki Icelandair Icelandair Group horfir enn til tækifæra í flugvélaviðskiptum. Þar eru allir framleiðendur undir. Nærri þriggja ára töf er á Dreamliner-vélum. vélar hafa verið seldar til Singa- pore Airlines, fimm til Emirates Airlines og þrjá til Quantas Airli- nes. Átta vélar eru á mismunandi stigum í innrétt- ingarferli og ell- efu eru í loka- samsetningu í framleiðslustöð Airbus í Toul- ouse í Frakk- landi. Þá ætli tvö ný flugfélög að taka þotuna í notkun í lok þessa árs og byrjun þess næsta, en það eru Air France og Luft- hansa. Þá er í framleiðslu og þróun A350 farþegaþota Airbus sem keppa á við langfleygar þotur Boeing, svo sem 777 og 787. A350 þotan tekur frá 270 upp í 350 far- þega í sæti. „Skrefi á undan 787 og af annarri kynslóð en 777,“ segir Didier Evrard, yfirmaður fram- leiðslunnar. Þá virðist gangur síðasta árs hjá Airbus ekki gefa tilefni til þess að hafa miklar áhyggjur, að minnsta kosti ekki ef horft er til sölutalna. John Leahy, yfirmaður viðskipta- sviðs, segir að í fyrra hafi félagið afhent 483 vélar, sem sé met. 900 vélar séu í pöntun, sem sé þriðja hæsta pantanastaða sem félagið hafi séð og að í árslok hafi 3.715 vélar félagsins verið í notkun. „Allt þetta þrátt fyrir afar erfið- ar markaðsaðstæður,“ segir hann. „Frá því um miðjan tíunda áratug- inn höfum við sótt í okkur veðrið og sagan er glæsileg,“ segir hann og bendir á að árið 1995 hafi Air- bus verið með 19 prósenta hlut- deild í flugvélapöntunum á móti 81 prósenti Boeing. Í lok síðasta árs voru pantanir Airbus 57 pró- sent og 43 prósent hjá keppi- nautnum. TOM ENDERS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.