Fréttablaðið - 20.05.2009, Blaðsíða 45
H A U S
MARKAÐURINN 5MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2009
Ú T T E K T
FRAMTÍÐARSÝN AIRBUS Líkast til fer þessi vél seint í loftið en hönnuðir Airbus nota
hana sér til innblásturs þegar horft er til framtíðar. Á kynningu í Hamborg í síðustu viku
sagði Acel Krein, sem er yfir rannsóknum og tækni hjá flugvélaframleiðandanum að horft
væri til þriggja þátta við nýsköpun hjá félaginu: að vélarnar væru aðlaðandi fyrir farþega,
umhverfisvænar og hagkvæmar í rekstri. MYND/AIRBUS
Bágt ástand á alþjóðlegum fjármálamörk-
uðum breytir engu um fyrirætlanir Ice-
landair hvað varðar kaup á nýjum Boeing
787 „Dreamliner“ þotum, að sögn Sigþórs
Einarssonar, aðstoðarforstjóra félagsins.
Tafir hafa orðið á framleiðslu vélanna,
þennig að tvær þotur sem afhenda átti Ice-
landair á næsta ári verða að óbreyttu ekki
afhentar fyrr en síðla árs 2012 og snemma
árs 2013.
Icelandair Group hefur pantað fimm
þotur þessarar gerðar og á kauprétt á
fleirum. „Við höfum fulla trú á þessari vél. En
núna árar þannig að tafirnar hjá Boeing koma sér
kannski ekkert illa fyrir þau félög sem áttu að fá
fyrstu vélarnar hjá Boeing,“ segir Sigþór og kveðst
gera ráð fyrir að þegar kemur að afhendingu nýju
þotnanna til Icelandair verði markaðurinn orðinn
mun eðlilegri. „Almennt finnum við bullandi áhuga
í fluggeiranum á því að taka þessa vél, jafnvel þótt
einhverjir hafi helst úr lestinni vegna vandamála
dagsins í dag.“
Icelandair Group hafði gert samning um að
leigja út fyrstu vélina sem afhenda átti og segir
Sigþór töfina vissulega hafa sett ákveðið strik í
þann reikning. „En við leysum bara úr því með
Boeing og ekkert hik er á okkur með þessar vélar.
Þetta eru hörkuvélar og eiga eftir að skila sam-
stæðunni sínu með einhverjum hætti.“
Enn hefur hins vegar ekki verið ákveðið til hvaða
verka nýju þotunum verður skipað eða hvað verð-
ur gert við þær eftir afhendingu. „Það hefur ekk-
ert þrýst á um ákvörðun í þeim efnum vegna taf-
anna. Svo er líka aldrei að vita hver staðan verð-
ur eftir tvö ár. Þá getur eins verið að
okkur vanti einmitt svona vélar á
einhverjar flugleiðir.“
Í flugiðnaði er enda gert ráð
fyrir miklum vexti áfram og segir Sig-
þór að Icelandair Group, líkt og önnur félög, reikni
með að flugumferð haldi áfram að aukast.
Fram kom á kynningu Airbus í Ham-
borg í byrjun síðustu viku að gert væri ráð
fyrir að flugumferð tvöfaldist á hverjum
15 árum. „Ég fór einmitt yfir þessar tölur
um daginn. Hægt er að horfa á tvo þætti í
þessum vexti, annars vegar skammtíma-
og hins vegar langtímasýn. Til skemmri
tíma eru mjög miklar sveiflur og við erum
að fara í gegnum eina slíka núna, niður-
sveiflu á eftir rosalegri uppsveiflu síðustu
ár. En þegar horft er yfir lengri tíma sést
að það er tvöföldun á hverjum fimmtán
árum.“ Sigþór áréttar um leið að þótt vöxturinn
virðist gífurlegur, þá þurfi ekki svo ýkja mikinn
vöxt á ári hverju til að ná þessum tölum, líkast
til fjögur til sex prósent á ári. „Og sá vöxtur er
ekki fjarri lagi því í löndum þar landsframleiðsla
á haus ekki mjög mikil núna þarf vöxtur ekki að
aukast mikið til að ferðalög margfaldist. Og stór
hluti heimsins er enn í þessari stöðu og nægir þar
að nefna Indland og Kína.“
Sigþór segir Icelandair Group horfa vítt á mögu-
leikana sem í boði eru hvað varðar flugvélakost
í rekstrinum og loki þar ekki á neina möguleika.
Samstæðan notar mestanpart Boeing vélar, en
einnig Airbus í fraktflutningum hjá dótturfélag-
inu Latcharter í Lettlandi. Þá segist hann tæpast
telja að Evrópusambandsaðild myndi hafa áhrif
á það hvar félagið kaupir vélar. „Ódýrar Airbus
vélar yrðu alveg örugglega ekki hluti af aðildar-
samningi,“ gantast hann með, en viðurkennir um
leið að dregnar hafi verið upp myndir af því hverju
það myndi breyta í rekstrinum að nota annan flug-
vélakost. „Helst myndi það breyta fjármálaum-
hverfinu, því viðskiptin yrðu þá að mestu í evrum
en ekki dollurum eins og nú, en það myndi ekki
beint hafa áhrif á viðskiptin. Við höfum hins vegar
ekki horfið frá því að við teljum að fyrirtæki eins
og okkar hafi töluverð tækifæri í viðskiptum með
flugvélar sem hliðarbúgrein. Í þeim efnum höldum
við opnum línum á alla staði.“
SIGÞÓR
EINARSSON
Tafirnar trufla ekki Icelandair
Icelandair Group horfir enn til tækifæra í flugvélaviðskiptum. Þar eru allir
framleiðendur undir. Nærri þriggja ára töf er á Dreamliner-vélum.
vélar hafa verið seldar til Singa-
pore Airlines, fimm til Emirates
Airlines og þrjá til Quantas Airli-
nes. Átta vélar eru á mismunandi
stigum í innrétt-
ingarferli og ell-
efu eru í loka-
samsetningu í
framleiðslustöð
Airbus í Toul-
ouse í Frakk-
landi. Þá ætli
tvö ný flugfélög
að taka þotuna
í notkun í lok
þessa árs og byrjun þess næsta,
en það eru Air France og Luft-
hansa.
Þá er í framleiðslu og þróun
A350 farþegaþota Airbus sem
keppa á við langfleygar þotur
Boeing, svo sem 777 og 787. A350
þotan tekur frá 270 upp í 350 far-
þega í sæti. „Skrefi á undan 787 og
af annarri kynslóð en 777,“ segir
Didier Evrard, yfirmaður fram-
leiðslunnar.
Þá virðist gangur síðasta árs hjá
Airbus ekki gefa tilefni til þess að
hafa miklar áhyggjur, að minnsta
kosti ekki ef horft er til sölutalna.
John Leahy, yfirmaður viðskipta-
sviðs, segir að í fyrra hafi félagið
afhent 483 vélar, sem sé met. 900
vélar séu í pöntun, sem sé þriðja
hæsta pantanastaða sem félagið
hafi séð og að í árslok hafi 3.715
vélar félagsins verið í notkun.
„Allt þetta þrátt fyrir afar erfið-
ar markaðsaðstæður,“ segir hann.
„Frá því um miðjan tíunda áratug-
inn höfum við sótt í okkur veðrið
og sagan er glæsileg,“ segir hann
og bendir á að árið 1995 hafi Air-
bus verið með 19 prósenta hlut-
deild í flugvélapöntunum á móti 81
prósenti Boeing. Í lok síðasta árs
voru pantanir Airbus 57 pró-
sent og 43 prósent hjá keppi-
nautnum.
TOM ENDERS