Fréttablaðið - 20.05.2009, Side 48

Fréttablaðið - 20.05.2009, Side 48
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is B A N K A H Ó L F I Ð 322 Bakkavör blæs til aðalfundar í höfuðstöðvum sínum í dag. Alla jafna hefur talsverð reisn verið á aðalfundum félagsins og má á stundum vart greina hvort verið sé að halda heljarinnar partí eða fara yfir ársskýrslu. Síðasti árs- fundur Bakkavarar í fyrra var eftirminnilegur enda haldinn á besta tíma, í Þjóðleikhúsinu klukkan hálf fimm á föstudegi. Kokkar komu frá öllum mark- aðssvæðum Bakkavarar víða að og töfruðu fram ljúffengar kræsingar úr verksmiðjum sam- steypunnar á öllum gestapöll- um leikhússins. Aðalfundurinn í ár er á talsvert lágstemmdari nótum en síðustu fimm ár hið minnsta. Hann verður haldinn í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Ármúlanum klukkan hálf ellefu - að morgni. Í boði verða hefð- bundnar kræsingar: flatkökur, kaffi og djús. Eftir veisluna miklu milljóna króna (14 milljónir danskar) hagnað- ur var á rekstri færeyska flugfélagsins Atlantic Airways fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi. 1,8 milljarða króna hagnaður var á rekstri Orkuveitu Reykjavíkur fyrstu þrjá mánuði ársins. Á sama tíma í fyrra var 17,2 milljarða króna tap. 38 milljarðar króna eru í vanskilum hjá Íbúðalánasjóði núna í maí miðað við stöðu útlána hjá sjóðnum um áramót. Vanskil hafa aukist síðustu mánuði. Þótt fjármálakreppan hafi bugað og beygt marga af auð- ugustu einstaklingum landsins telst þeim til tekna að þeir hafa húmor fyrir aðstæðum sínum. Varla getur verið auðvelt að halda í góða skapið eftir áföll í fjárfestingum og þung högg kreppunnar, sem á stundum hafa sett skarð í veldi þeirra, jafnvel svo það lætur veru- lega á sjá. Í einhverjum til- vikum hefur verið greint frá heilu auðmannafjölskyldunum sem standa á bjargbrúninni og hafa neyðst til að horfa á upp- byggingu síðustu ára hrynja til grunna. Það nýjasta sem hrynur af vörum fjárfesta síðustu daga spurt hvernig þeir hafi það er því eðlilega: „Eftir atvikum.“ Eftir atvikum NÝTT Einnig á S auðár- króki! Og enn um athafnamenn því Vísir greindi frá því í vikunni að skuldir Hannesar Smárasonar, fyrrverandi forstjóra FL Group (nú Stoða), næmu hátt í 45 millj- örðum króna að því gefnu að hann hafi ekkert greitt niður af skuldabagganum frá árslokum 2007. Algengur misskilningur virðist hér hafa verið á ferð- inni. Því þegar allt lék í lukk- unnar velstandi voru Hannes og aðrir stórlaxar auðmenn. Þegar í harðbakkann sló féllu hins vegar skuldbindingar flestra á eignar- haldsfélög, eða um svipað leyti og auðmennirnir fluttu úr landi. Þegar síðast fréttist af Hannesi rak hann veisluþjón- ustu í Lundúnaborg og hafði það, eins og sumir orða það, eftir a t v i k - um. Félag(i) Hannes?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.