Fréttablaðið - 20.05.2009, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 20.05.2009, Blaðsíða 52
20 20. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Ég var á ráðstefnu um fækkun svína. Gettu hvað var í matinn? Svína- kráin Hvað er þetta Mjási? HARÐUR! Þú vilt ekki vita það! Ertu að sofna Palli? Nei, en þú? Alls ekki. Heyrðu! Förum hring um hverfið! Ertu bilaður? Það er komið fram yfir miðnætti! Við værum þeir einu á götunni! Þetta er … ... besta hug- mynd sem þú hefur nokkurn tímann fengið! Nóttin bíður okkar! Þetta er nafn- spjaldið mitt. ... Besti... ... köttur... ... í heimi... Það er ég. Hannes, vaknaðu! Heyrðirðu lætin? Hvaða læti? Þetta var svona klór-klór, skruðn- ingur-Á! Leikfanga- drasl! Vatnsbuna og svo sturt! Hvað heldurðu að þetta hafi verið? Tvíhöfða blóðsuga utan úr geimn- um sem var að brjótast inn? Hvað horfirðu eiginlega á margar teiknimyndir á dag? Þar sem ég fékk að fylgja Eurovision-hópnum til Moskvu verð ég að segja aðeins frá þessu ánægjulega úrslita- kvöldi síðasta laugardag í Ólympíuhöllinni. Flytjendur og höfundar settust í græna herbergið eftir vel heppnaðan flutning, en við vorum sjö manns sem sátum í yfir- gengilega stórum salnum, umkringd fólki alls staðar að. Eftir spennufall þriðjudagsins, þegar Ísland var síðast til að vera tilkynnt áfram í úrslit, hélt maður að ekkert gæti komið sér úr jafnvægi. Það var þó ekki raunin því magapínan gerði fljótt vart við sig þegar stigagjöfin hófst og fyrstu tvö löndin gáfu Íslandi ekki svo mikið sem eitt stig. Hugur- inn fór á flug og það hvarflaði strax að mér að þarna ættu bankahrunið og Icesave-deilan hlut að máli – nú þyldi enginn Ísland lengur. Það leið þó ekki á löngu þar til stigin fóru að rúlla inn og Bretar gáfu okkur meira að segja átta stig. Við fámenni íslenski hópurinn réðum okkur ekki fyrir gleði í hvert sinn sem Ísland fékk stig og hrópuðum og veif- uðum litlum fánum eins og við ættum lífið að leysa. Eftir því sem leið á stigagjöfina fór fólk- ið í kringum okkur að sjá í hvað stefndi, fór að klappa með og óska okkur til ham- ingju. Þegar úrslitin lágu fyrir voru það stoltir Íslendingar sem gengu með fánana sína í gegnum höllina til að óska keppend- unum til hamingju. Besta árangri Íslands í Eurovision frá upphafi hafði verið náð, heillaóskir bárust að heiman og það voru ófá gleðitár sem féllu. Allir voru sáttir við norskan sigur og gleðin var í algleymingi – Ísland var orðið næststórasta land í heimi. Eurovision-gleði í algleymingi NOKKUR ORÐ Alma Guðmundsdóttir Tilboðið gildir til 24.maí Framhalds aðalfundur Hestamannafélagsins Fáks Framhalds aðalfundur Hestamannafélagsins Fáks verður haldinn 3. júní nk. í félagsheimili Fáks. Fundurinn hefst kl. 20:00 og eru félagsmenn hvattir til að mæta. Dagskrá: Breytingar á lögum félagsins. Strax eftir framhalds aðalfundinn verður kynning á breyttu deiliskipulagi á horni Breiðholtsbrautar og Vatnsveituvegar. Stjórn Hestamannafélagsins Fáks TORTILLA VEISLUBAKKI EÐALBAKKI LÚXUSBAKKI DESERTBAKKI GAMLI GÓÐI TORTILLA OSTABAKKI 30 bitar 30 bitar 20 bitar 20 bitar 20 bitar 50 bitar Fyrir 10 manns ÁVAXTABAKKI FERSKT EINFALT & ÞÆGILEGT PANTAÐU SÓMA VEISLUBAKKA Pantaðu í síma 565 600 0 eða á w ww.som i.is Frí heim sending * Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm. *Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.